Ósáttur við brosið hans Solskjær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2020 22:45 Ole Gunnar Solskjær verður að passa sig hvenær hann brosir og hvenær ekki. EPA-EFE/RICHARD WAINWRIGHT
Robin van Persie lék með síðasta liði Manchester United sem varð enskur meistari vorið 2013. Hann var ekki sáttur með knattspyrnustjórann eftir leik Arsenal og Manchester United í gær. Arsenal vann leikinn 2-0 og fyrir vikið mistókst Manchester United liðinu að komast tveimur stigum frá Chelsea í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Ole Gunnar Solskjær er þekktur fyrir að vera viðkunnanlegur í sjónvarpsviðtölum og skiptir þar ekki máli hvort liðið hans vinnur eða tapar. Van Persie var hins vegar ósáttur með það að norski stjórinn leyfði sér að brosa í sjónvarpsviðtalinu eftir tapið á Emirates í gær. RVP wasn't happy about Solskjaer smiling in his post-match interview at the Emirates pic.twitter.com/O68DMDFIJM— ESPN FC (@ESPNFC) January 2, 2020 „Vertu bara reiður. Það pirrar mig að sjá hann brosa eftir svona leik. Þetta var ekki tímapunkturinn fyrir hann til að brosa,“ sagði Robin van Persie á BT Sport eftir leikinn. Manchester United liðið er í 5. sæti deildarinnar með 31 stig í 21 leik. Liðið er 24 stigum á eftir toppliði Liverpool og Liverpool á líka tvo leiki til góða. United var búið að vinna tvo deildarleiki í röð en tókst ekki að vinna þrjá deildarleiki í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Liðið var líka í þeirri stöðu á móti Everton á útivelli 15. desember síðastliðinn en gerði þá 1-1 jafntefli. Van Persie varð markakóngur deildarinnar þegar Manchester United vann titilinn síðast 2013 en þá var Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins. Robin van Persie skoraði 26 mörk það tímabil eða þremur mörkum meira en næsti maður sem var Luis Suárez hjá Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Jorge Costa látinn Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Fleiri fréttir Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Sjá meira