Jafnt í borgarslagnum í Barcelona Arnar Geir Halldórsson skrifar 4. janúar 2020 21:45 Wu Lei í þann mund að jafna metin vísir/getty Það var mikið um dýrðir í Barcelona í dag þegar Espanyol og Barcelona áttust við í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Espanyol ekki unnið heimaleik til þessa í vetur og reiknuðu margir með þægilegum sigri gestanna. Það varð alls ekki raunin. Þvert á móti komust heimamenn yfir í fyrri hálfleik með marki David Lopez og leiddu með einu marki í leikhléi. Börsungar mættu tvíefldir í síðari hálfleikinn og eftir klukkutíma leik var staðan orðin 1-2 þeim í vil með mörkum Luis Suarez og Arturo Vidal. Frenkie De Jong fékk að líta tvö gul spjöld með skömmu millibili á síðasta stundarfjórðungi leiksins og þar með rautt spjald. Liðsmuninn nýttu heimamenn sér til að jafna leikinn því kínverski markahrókurinn Wu Lei skoraði á 88.mínútu og jafntefli niðurstaðan. Spænski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann Íslenski boltinn
Leik lokið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn