Sviss kaupir 4,5 milljón skammta af bóluefni Moderna Andri Eysteinsson skrifar 7. ágúst 2020 12:36 Lokaprófanir eru hafnar í Bandaríkjunum. Getty/NurPhoto
Svissneska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að samningar hefðu náðst við bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna um kaup á 4,5 milljón skömmtum af bóluefninu sem Moderna vinnur nú að, fyrirvari er settur í kaupin um að bóluefnið virki sem skyldi. Heilbrigðisyfirvöld í Sviss vilja með kaupunum tryggja aðgang svissnesku þjóðarinnar að bólusetningu við kórónuveirunni sem geisað hefur um heimsbyggðina frá því í byrjun árs. Talið er líklegast að hver einstaklingur þurfi tvo skammta af bóluefninu til þess að virkni þess sé tryggð. Því er áætlað að skammtarnir muni duga til að bólusetja 2,5 milljónir íbúa landsins sem eru alls 8,2 milljónir. Ríkisstjórnin er einnig sögð í viðræðum við fleiri lyfjafyrirtæki sem vinna að þróun bóluefnis og hafa 300 milljónir svissneskra franka verið settir til hliðar og verða notaðir í kaup á bóluefni. Ekki hefur verið greint frá því á hvaða verði Moderna seldi Svisslendingum bóluefnisskammtana. Moderna hóf í síðasta mánuði lokaprófanir á bóluefninu eftir að fyrstu prófanir höfðu lofað góðu. Um 30.000 manns taka nú þátt í tilrauninni sem er ætlað að sýna fram á að bóluefnið veiti ónæmi gegn COVID-19 sjúkdómnum sem kórónuveiran veldur.
Sviss Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira