De Gea fann tvífara sinn í Skotlandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2020 13:30 David de Gea virðist eiga sér tvífara í Skotlandi. getty/Sebastian Frej
David de Gea, markverði Manchester United, brá í brún þegar hann sá viðtal við Stuart Kettlewell, knattspyrnustjóra Ross County, fyrir leik liðsins gegn Motherwell 1. umferð skosku úrvalsdeildarinnar. De Gea og Kettlewell eru nefnilega svipaðir í útiliti, eða nánast eins. Spánverjinn birti mynd af tvífara sínum á Twitter sem vakti mikla athygli. pic.twitter.com/8s0IXPGkkL— David de Gea (@D_DeGea) August 3, 2020 Kettlewell kippti sér lítið upp við þær fréttir að hann ætti tvífara í Manchester. „Sem betur fer er ég ekki á samfélagsmiðlum svo þetta fór fyrir lítið,“ sagði Skotinn. Ross County vann Motherwell með einu marki gegn engu. Á síðasta tímabili endaði liðið í 10. sæti skosku deildarinnar af tólf liðum. Kettlewell stýrði Ross County með Steve Ferguson í tvö ár en hefur verið einn með liðið síðan í sumar. De Gea og félagar hans í United undirbúa sig nú undir lokasprettinn í Evrópudeildinni. United mætir LASK Linz á Old Trafford í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum annað kvöld. United er svo gott sem komið áfram eftir 0-5 sigur í fyrri leiknum í Austurríki. Í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar mætir United sigurvegaranum úr rimmu Istanbul Basaksehir og FC København.
Enski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Sjá meira