Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 19:02 Haaland setti upp húfu þegar Manchester City átti leik 27. desember í fyrra. Clive Mason/Getty Images Enska úrvalsdeildin tilkynnti í dag að sjö leikir fari fram í deildinni á annan í jólum. Deildin sætti gagnrýni fyrir að dagskrásetja aðeins einn leik þann daginn í fyrra.
Kvöldleikur Manchester United og Newcastle United var eini leikurinn sem fram fór í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Það var í fyrsta skipti í sögu efstu deildar á Englandi sem fjöldi leikja fer ekki fram þann daginn. Leikið hefur verið á annan dag jóla á hverju einasta ári frá því að enska deildarkeppnin varð til fyrir 136 árum síðan. Hefðin skapaðist eftir að fyrsti fótboltaleikur milli tveggja fótboltaliða fór fram 26. desember árið 1860 milli Sheffield FC og Hallam FC. Enska úrvalsdeildin benti á UEFA og fjölgun Evrópuleikja sem ástæðu fyrir því að ekki var leikið á annan dag jóla á síðustu leiktíð en deildin komst þó hjá því að engir leikir færu fram þann daginn í fyrsta sinn í sögunni (að undanskildum árum þar sem deildarkeppnin fór yfirhöfuð ekki fram sökum heimsstyrjalda í Evrópu). Þessi staki leikur Manchester United og Newcastle fór fram að kvöldi til á annan í jólum í fyrra. Margur fótboltaáhugamaðurinn fannst hann svikinn að geta ekki legið flatmaga í sófanum með afganga af jólamat að horfa á enskan fótbolta. Þeim sem leið þannig þurfa ekki að örvænta í ár. Hátíðin snýr aftur í desember. Sjö leikir fara fram á annan dag jóla samkvæmt yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar. Leikjaniðurröðun dagana 26. og 27. desember má sjá að neðan. Einnig fara fram leikir dagana 29. og 30. desember, 1., 2., 3., 5., 6. og 7. janúar. Það verður því nóg um að vera í enska boltanum á Sýn Sport yfir hátíðirnar og í upphafi nýs árs. Laugardagur 26. desember 12:30 Aston Villa - Leeds 15:00 Everton - Sunderland 15:00 Fulham - Brighton 15:00 Ipswich - Brentford 15:00 Tottenham - Bournemouth 17:30 Hull - Liverpool 20:00 Newcastle - Man City Sunnudagur 27. desember 14:00 Coventry - Chelsea 16:30 Man Utd - Nottingham Forest 19:00 Crystal Palace - Arsenal
Enski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira