Lagerpool leikur ensku meistaranna í spaugilegu ljósi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2020 09:00 Raheem Sterling átti stórleik í liði Manchester City og var sínum gömlu félögum í Liverpool liðinu mjög erfiður. EPA-EFE/Laurence Griffiths
Liverpool endaði tveggja ára sigurgöngu Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og það var mikið húllumhæ í herbúðum liðsins enda Liverpool að verða enskur meistari í fyrsta sinn í þrjá áratugi. Leikmenn Liverpool fengu góðan tíma til að fagna enska meistaratitlinum fyrir leikinn á móti Manchester City í byrjun mánaðarins og frammistaðan á Ethiad leikvanginum minnti ekkert á meistaralið. Nýkrýndir Englandsmeistarar Liverpool voru nefnilega teknir í bakaríið þegar þeir steinlágu 4-0 fyrir liði Manchester City. Kevin De Bruyne, Raheem Sterling og Phil Foden voru allir á skotskónum og eitt markið var sjálfsmark hjá Liverpool manninum Alex Oxlade-Chamberlain. Leikmenn Manchester City voru einbeittir og það kveikti greinilega vel í þeim að þurfa að standa heiðursvörð fyrir Liverpool liðið fyrir leikinn. Á móti minnti frammistaða Liverpool liðsins ekkert á liðið sem hafði rúllað yfir deildina og var meira en tuttugu stigum á undan City fyrir leikinn. Nú hafa grínararnir á 442oons sett saman myndband sem sýnir þennan leik ensku meistaranna í spaugilegu ljósi eins og sjá má hér fyrir neðan. watch on YouTube
Enski boltinn Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Freyr segir belgíska blaðið ljúga Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Fleiri fréttir Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Sjá meira