Björgvin hæfari en fyrrverandi þingmenn og forstjórar Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. júlí 2020 11:07 Björgvin Víkingsson, verðandi forstjóri Ríkiskaupa. stjórnarráðið
Björgvin Víkingsson tekur við starfi forstjóra Ríkiskaupa 1. september næstkomandi. Hann var einn 34 umsækjenda um starfið en þrír drógu umsókn sína til baka, að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins. Eins og Vísir greindi frá á sínum tíma voru ýmsir þjóðþekktir á meðal umsækjenda; eins og Ari Matthíasson fyrrverandi þjóðleikhússtjóri, Björgin G. Sigurðsson, Tryggvi Harðarson og Höskuldur Þórhallson fyrrverandi alþingismenn, Björn Óli Ö Hauksson fyrrverandi forstjóri Isavia, Björn H. Halldórsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorpu og Sólmundur Már Jónsson fyrrverandi mannauðs- og rekstrarstjóra Hafrannsóknarstofnunar. Sem fyrr segir varð Björgvin fyrir valinu en hann er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá Swiss Federal Institute of Technology og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað við innkaup og vörustjórnun hjá fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík. Þar að auki er Björgvin, eða var í það minnsta, liðtækur spretthlaupari. Hann setti t.a.m. Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi árið 2008.
Vistaskipti Stjórnsýsla Mest lesið Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Sjá meira