Lárus skipaður stjórnarformaður Menntasjóðs námsmanna Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2020 08:19 Lárus Sigurður Lárusson. Aðsend
Lárus Sigurður Lárusson lögmaður hefur verið skipaður stjórnarformaður nýs Menntasjóðs námsmanna. Sjóðurinn kemur í stað Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Frumvarp menntamálaráðherra um sjóðinn var samþykkt á Alþingi í vor, en það felur í sér umtalsverðar breytingar á lánum til námsmanna sem að hluta til geta orðið styrkir og ábyrgðamannakerfið verður að mestu lagt niður. Með nýjum lögum geta þeir sem taka lán hjá Menntasjóði fengið 30 prósent af lánum sínum breytt í styrk, ljúki þeir námi innan tilgreindra tímamarka. Í tilkynningunni kemur fram að Lárus starfi hjá lögmannsstofunni Sævar Þór & Partners. „Lárus starfaði áður sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu í rúm fimm ár áður en hann fór að leggja stund á lögmennsku. Þar áður var hann lögfræðingur hjá Persónuvernd. Lárus starfaði sem lögfræðingur hjá ríkinu í meira en áratug og hefur því mikla reynslu og þekkingu á stjórnsýslurétti fyrir utan þau réttarsvið sem hann starfaði á, samkeppnisrétti og persónuupplýsingarétti. Hann sat í stjórn LÍN og var varaformaður stjórnar. Hann situr einnig í stjórn um heiðurslaun listamanna og er varamaður í stjórn listamannlauna.“ Lárus Sigurður leiddi lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í síðustu Alþingiskosningum.
Vistaskipti Hagsmunir stúdenta Mest lesið „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Viðskipti innlent Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Viðskipti innlent Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Viðskipti innlent Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Neytendur Fleiri fréttir Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Rannveig kjörin heiðursfélagi Icelandair hefur flug til Miami Verðbólga mjakast niður á við Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Láta af óheimilli ríkisaðstoð við Sorpu Markaðurinn væntir vaxtalækkana Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti Kolefnisförgunarstöð metin með hagsmuni íbúa að leiðarljósi Hæstiréttur tekur deilur Vinnslustöðvarinnar og ríkisins fyrir Nýir forstöðumenn hjá Motus Landsbankinn sé „svo sannarlega“ enn banki allra landsmanna Hallur Flosa rekstrarstjóri prentlausna hjá OK Telur furðulegt að „banki allra landsmanna“ veiti ekki íbúðalán í dreifbýli Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni Þrír nýir eigendur bætast í hópinn Vatnsbúskapurinn fer batnandi Hildur nýr mannauðsstjóri Distica Einkaþotufyrirtæki með skrautlega sögu svipt starfsleyfi vegna öryggismála Norska sjóbjörgunarsveitin semur við íslenskt fyrirtæki Boða til fundar með íbúum Ölfuss um kolefnisförgunarstöð Ari nýr tæknistjóri Sjá meira