Hagsmunir stúdenta

Fréttamynd

Sig­rún Helga nýr for­seti Röskvu

Sigrún Helga Guðnadóttir hefur verið kjörin forseti Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Ný stjórn hreyfingarinnar var kjörin í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Vaka kaus sér nýja for­ystu

Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, kaus sér nýja forystu á aðalfundi félagsins í Grósku á sunnudag. Birgir Ari Óskarsson viðskiptafræðinemi var kjörinn formaður félagsins en fráfarandi formaður er Kristófer Breki Halldórsson.

Innlent
Fréttamynd

Röskva bar sigur úr býtum

Röskva - samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands bar sigur úr býtum í kosningum til stúdentaráðs og háskólaráðs í gær. Röskva nær því meirihluta eftir tvö ár af Vöku í meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Fyrningar­reglur náms­lána og laga­skil nýrra laga

Með lögfestingu laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna, sem tóku gildi 26. júní 2020, var gerð grundvallarbreyting á réttarumhverfi námslána hér á landi. Lögin leystu af hólmi lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og kynntu til sögunnar nýjar reglur, meðal annars um fyrningu krafna.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki í fyrsta skipti sem oddvitarnir kljást um bílastæðamál

Komandi sveitarstjórnarkosningar eru ekki þær fyrstu þar sem Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, koma til með að takast á um bílastæði. Báðar sinntu þær formannsstörfum í stúdentapólitíkinni.

Innlent
Fréttamynd

Há­skólinn lagði stúdenta

Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur hafnað kröfu fyrrverandi nemanda um endurgreiðslu skráningargjalda, á þeim grundvelli að þau væru byggð á sandi.

Innlent
Fréttamynd

Vökuliðar frestuðu af­greiðslu á van­trausts­til­lögu

Stúdentaráð Háskóla Íslands ákvað í dag á fundi ráðsins að fresta afgreiðslu vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, fram til næsta Stúdentaráðsfundar. Sú ákvörðun að fresta afgreiðslu tillögunnar var tekin af stúdentaráðsliðum Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta.

Innlent
Fréttamynd

Rektor sendir frá sér yfir­lýsingu vegna van­trausts­til­lögu

Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Leggja til van­traust á hendur Silju Báru

Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda.

Innlent
Fréttamynd

4.927 stúdentar borga kaffið og kleinurnar

Á dögunum samþykkti háskólaráð tillögu um hækkun skrásetningargjalds við Háskóla Íslands úr 75.000 í 100.000 krónur þrátt fyrir harðorða bókun fulltrúa Vöku sem greiddi atkvæði gegn tillögunni.

Skoðun
Fréttamynd

Þurfa að brúa sex milljarða króna bil

Fjárframlög ríkisins til Háskóla Íslands þyrftu að vera sex milljörðum krónum hærri á árinu 2026 svo að þau væru sambærileg hinum Norðurlöndunum. Háskólaráð skorar á stjórnvöld að forgangsraða fjármunum í þágu menntunar.

Innlent
Fréttamynd

Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla

Háskólaráð Háskóla Íslands samþykkti í dag að hækka skrásetningargjald háskóla landsins um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári. Fulltrúar stúdenta mótmæltu fyrirhugaðri hækkun í aðdraganda fundarins en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Innlent
Fréttamynd

Stúdenta­pólitík er pólitík

Á stúdentapólitík bara að vera eilíft tuð um bílastæðagjöld sem hefur engin víðtækari áhrif á samfélagið sem stúdentar tilheyra? Algeng klisja sem fólk heyrir um stúdentapólitík er að hún sé ekki og eigi ekki að vera tengd pólitík utan háskólans.

Skoðun
Fréttamynd

Tak­marka fjölda nem­enda utan EES

Háskóli Íslands hefur innleitt ný fjöldatakmörk nemenda utan EES í einstaka námsleiðir. Til dæmis verða á næsta ári ekki teknir inn fleiri en 50 nemendur frá löndum utan EES í íslensku sem annað mál. Það er ein vinsælasta námsleið skólans, alls sóttu 800 um í það og íslenskustoð síðasta vor fyrir núverandi skólaár.

Innlent
Fréttamynd

Bílastæða­sjóður hætti eftir­liti á bíla­stæðum við Land­spítala og HR

Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, hefur lagt til við umhverfis- og skipulagsráð að Reykjavíkurborg segi upp samningum Bílastæðasjóðs um rekstur gjaldskyldu fyrir einkaaðila á gjaldsvæði 4 (P4). Tillagan var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í dag og vísað til borgarráðs til afgreiðslu. 

Innlent
Fréttamynd

Óttast á­hrifin sem frum­varpið geti haft á Land­spítalann

Forstjóri Landspítalans óttast að verði af frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um dvalar- og atvinnuleyfi muni það hafa áhrif á mönnun innan heilbrigðisþjónustunnar. Hann óskar eftir því að ráðuneytið leiti annarra leiða sem hafi ekki eins mikil áhrif á sjúkrahúsið.

Innlent