Dortmund reynir að koma í veg fyrir félagsskipti Sancho Ísak Hallmundarson skrifar 24. júní 2020 13:30 Sancho hefur spilað frábærlega með Dortmund og væri mikill liðsstyrkur fyrir Manchester United getty/Alexandre Simoes
Það hefur verið talið afar líklegt undanfarið að Jadon Sancho, leikmaður Dortmund, muni fara til Manchester United fyrir næsta tímabil. Félagsskiptin gætu nú verið í uppnámi. Dortmund eru sagðir vera að teikna upp plan til að stöðva vistaskipti Sancho þrátt fyrir að leikmaðurinn vilji sjálfur fara til Old Trafford. Dortmund hefur sett 115 milljón punda verðmiða á Sancho og þeir ætla sér ekki að hörfa frá því. United vilja hinsvegar fá leikmanninn fyrir lægri upphæð vegna áhrifa heimsfaraldursins á fjárhaginn. Þeir gætu hinsvegar ákveðið að reyna aftur við leikmanninn að ári liðnu. Dortmund eru sagðir ætla að hækka laun Sancho umtalsvert, úr 5,4 milljónum punda á ári í 9 milljónir punda, til að tryggja framtíð leikmannsins hjá félaginu. Það er þó talið að þessi enski landsliðsmaður vilji snúa aftur í ensku úrvalsdeildina eftir þriggja ára fjarveru, en hann var á mála hjá Manchester City. Hinn 20 ára gamli Sancho hefur skorað 17 mörk og lagt upp 17 á tímabilinu og verður líklega hart barist um hann í sumar.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira