Hnífstunguárásin flokkuð sem hryðjuverk Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. júní 2020 11:44 Lögreglan vaktar inngang að Forbury garði í Reading eftir hnífstunguárás í gærkvöldi. Getty/Richard Heathcote
Lögreglan flokkar nú hnífstunguárás sem framin var í gærkvöldi í Reading á Bretlandi sem hryðjuverkaárás. Þrír létust í árásinni og þrír eru alvarlega slasaðir. 25 ára karlmaður var handtekinn á vettvangi grunaður um að hafa framið verknaðinn. Árásin átti sér stað um klukkan sjö í gærkvöldi að staðartíma í Forbury Gardens í bænum Reading. Árásarmaðurinn réðst á nokkra viðstadda í garðinum og lýsir vitni að árásinni því hvernig maðurinn gekk á milli hópa og reyndi að stinga fólk. Neil Basu, aðstoðarlögreglustjóri og yfirmaður rannsóknardeildar hryðjuverka, sagði í samtali við breska ríkisútvarpið að ekkert gæfi til kynna að nokkur annar hafi staðið að árásinni. Þá hefur BBC eftir ónefndum heimildamanni að maðurinn sem var handtekinn sé líbanskur. Hann hafi áður setið í fangelsi í Englandi fyrir minniháttar brot. Basu greindi einnig frá því að unnið sé nú að því að bera kennsl á hina látnu og hrósaði hann óvopnuðu lögreglumönnunum í Thames Valley sem náðu að afvopna og handtaka hinn grunaða árásarmann.
Bretland Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Innlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent Gæti orðið flughált síðdegis Innlent Fleiri fréttir Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Sjá meira