Erlent

Sak­felling blaða­konu talin á­fall fyrir frjálsa fjöl­miðlun

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
María Ressa, blaðakona og ritstjóri Rappler.
María Ressa, blaðakona og ritstjóri Rappler. EPA/MARK R. CRISTINO

Verðlaunablaðakona á Filippseyjum var í morgun dæmd í fangelsi fyrir meiðyrði og er málið sagt áfall fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu. Dómurinn sakfelldi Maríu Ressa, fréttasíðuna Rappler og fyrrverandi blaðamanninn Reynaldo Santos Jr. fyrir meiðyrði í garð auðugs viðskiptamanns í landinu. 

Greinin var skrifuð fyrir átta árum, en fyrningartími í meiðyrðamálum í landinu er fimm ár. Ressa sagði eftir dómsuppkvaðninguna að hún muni berjast áfram fyrir tjáningafrelsi en umfjöllunin um auðmanninn tengdi hann við morð, eiturlyfjasölu, mansal og smygl.

Ressa gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi en nú er hún laus gegn tryggingu og stendur til að áfrýja til hærra dómstigs. Hinn umdeildi forseti Rodrigo Duterte hefur tjáð sig um málið og hann hafnar því að það snúist um frelsi fjölmiðlunar í landinu, aðeins sé verið að fara eftir lögum.


Tengdar fréttir

Að þora – Ísland í Mannréttindaráði S.þ.

Þátttaka Íslands í starfi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna árin 2018-2019 er fyrir margra hluta sakir stórmerkileg. Talað er um tímamót í íslenskri utanríkisþjónustu enda er það rétt að Ísland hefur ekki áður tekið að sér svo stórt hlutverk á alþjóðavettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×