Sigurbergur leggur skóna á hilluna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. maí 2020 15:36 Sigurbergur í bikarúrslitaleik ÍBV og Stjörnunnar í mars. Það var hans síðasti leikur á ferlinum. vísir/daníel Handboltamaðurinn Sigurbergur Sveinsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann greindi frá þessu í Sportinu í dag. Sigurbergur, sem er 32 ára, spilaði með ÍBV síðustu fjögur ár ferilsins. Hann gat lítið leikið með ÍBV í vetur vegna meiðsla en tók þó þátt í bikarúrslitaleiknum þar sem Eyjamenn sigruðu Stjörnumenn, 26-24. Það reyndist síðasti leikur Sigurbergs á ferlinum. Klippa: Sportið í dag - Sigurbergur hættur í handbolta Hann er uppalinn hjá Haukum og lék með liðinu til 2010 þegar hann fór til Rheinland í Þýskalandi. Hann lék einnig með þýska liðinu Hannover-Burgdorf og Basel í Sviss áður en hann sneri aftur í Hauka 2012. Sigurbergur í leik gegn Danmörku á HM í Katar fyrir fimm árum.vísir/epa Sigurbergur lék með Erlangen í Þýskalandi tímabilið 2014-15 og Team Tvis Holstebro í Danmörku 2015-16 áður en hann kom aftur heim og fór til ÍBV. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með Haukum og einu sinni með ÍBV. Sigurbergur vann bikarkeppnina fjórum sinnum, tvisvar með Haukum og tvisvar með ÍBV. Þá varð hann í fjórgang deildarmeistari með Haukum og einu sinni með ÍBV. Sigurbergur lék yfir 50 landsleiki og fór með íslenska landsliðinu á HM 2011 og 2015. Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Olís-deild karla Íslenski handboltinn ÍBV Sportið í dag Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira
Handboltamaðurinn Sigurbergur Sveinsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann greindi frá þessu í Sportinu í dag. Sigurbergur, sem er 32 ára, spilaði með ÍBV síðustu fjögur ár ferilsins. Hann gat lítið leikið með ÍBV í vetur vegna meiðsla en tók þó þátt í bikarúrslitaleiknum þar sem Eyjamenn sigruðu Stjörnumenn, 26-24. Það reyndist síðasti leikur Sigurbergs á ferlinum. Klippa: Sportið í dag - Sigurbergur hættur í handbolta Hann er uppalinn hjá Haukum og lék með liðinu til 2010 þegar hann fór til Rheinland í Þýskalandi. Hann lék einnig með þýska liðinu Hannover-Burgdorf og Basel í Sviss áður en hann sneri aftur í Hauka 2012. Sigurbergur í leik gegn Danmörku á HM í Katar fyrir fimm árum.vísir/epa Sigurbergur lék með Erlangen í Þýskalandi tímabilið 2014-15 og Team Tvis Holstebro í Danmörku 2015-16 áður en hann kom aftur heim og fór til ÍBV. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með Haukum og einu sinni með ÍBV. Sigurbergur vann bikarkeppnina fjórum sinnum, tvisvar með Haukum og tvisvar með ÍBV. Þá varð hann í fjórgang deildarmeistari með Haukum og einu sinni með ÍBV. Sigurbergur lék yfir 50 landsleiki og fór með íslenska landsliðinu á HM 2011 og 2015. Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Olís-deild karla Íslenski handboltinn ÍBV Sportið í dag Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira