Markalaust í stórleiknum á Spáni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. desember 2019 20:45 Það var hart barist á Nývangi vísir/getty Markalaust varð í El Clasico, leik Barcelona og Real Madrid, á Camp Nou í Barcelona í kvöld. Stórliðin tvö komu inn í þennan leik jöfn stiga á toppi La Liga deildarinnar og því mikið undir í þessum leik eins og alltaf þegar þessi lið mætast. Leikurinn stóð þó ekki alveg undir nafni þegar kemur að mörkum því ekkert mark var skorað í leiknum. Bæði lið fengu þó sín færi, snemma í leiknum bjargaði Gerard Pique á línu fyrir Barcelona og Sergio Ramos gerði það sama fyrir Real eftir um hálftíma leik. Á 74. mínútu náði Gareth Bale að koma boltanum í netið en mark hans var dæmt af vegna rangstöðu, Ferland Mendy var rangstæður þegar hann fékk boltann áður en hann sendi boltann áfram á Bale. Jafnteflið þýðir að liðin eru áfram jöfn á toppi deildarinnar, þau eru með fimm stiga forskot á Sevilla í þriðja sætinu. Spænski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti