Jól

Enn stelur Kertasníkir senunni þótt hann sé ekki kominn til byggða

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hurðaskellir kíkti í heimsókn í Hæðargarð í gær og brá á leik. Hann er meðal vinsælustu jólasveinanna og getur vel við unað.
Hurðaskellir kíkti í heimsókn í Hæðargarð í gær og brá á leik. Hann er meðal vinsælustu jólasveinanna og getur vel við unað. Vísir/Vilhelm

Fimmta árið í röð reyndist Kertasníkir hlutskarpastur jólasveinanna þegar kemur að vinsældum en 29% landsmanna átján ára og eldri tilnefndu Kertasníki sem sinn uppáhalds jólavein. Stúfur reyndist næstvinsælastur sem fyrr en saxaði aftur á móti verulega á forskot Kertasníkis og stökk úr 25% stuðningi í 28%. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

„Þegar sagan er skoðuð þá sjáum við að stuðningur við Stúf hefur rokið svona upp áður og má sjá vísbendingar um að vinsældir hans fylgi svolítið þeirri poppmenningu sem er uppi hverju sinni,“ segir í tilkynningu MMR.

Í ár hafi til að mynda verið gefin út bókin Stúfur hættir að vera jólasveinn sem fengið hefur töluverða athygli og Stúfur sjálfur tekið þátt í almannatengslaherferð til að kynna bókina. Stúfur fór líka með himinskautum í vinsældum árið 2017, sama ár og hann var í aðahlutverki í jólalagi Baggalúts og Friðriks Dórs.

Hurðaskellir fylgdi svo á eftir í þriðja sætinu með 11% tilnefninga en röðun þriggja vinsælustu jólasveinanna hefur haldist óbreytt frá því að mælingar hófust árið 2015. Sem fyrr reyndist föruneyti minnst við þá jólasveina sem temja sér að sleikja óhrein matarílát - þ.e. þeirra Askasleikis, Þvörusleikis og Pottaskefils.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×