Fjórða kynslóð Skoda Octavia frumsýnd Njáll Gunnlaugsson skrifar 14. nóvember 2019 08:00 Ný Octavía er mun líkari nýjum Scala og Superb með samvöxnum díóðuljósum í stað aðskilinna áður.
Fjórða kynslóð Skoda Octavia var frumsýnd á mánudagskvöld full af nýrri tækni auk þess að vera nú fáanleg sem tengiltvinnbíll. Skoda Octavia er miðpunkturinn í sölukerfi Skoda enda hefur bíllinn selst í meira en sex milljón eintökum síðan hann var frumsýndur árið 1996. Á Íslandi hefur Octavia verið einn mest seldi bíll landsins í mörg ár og vann meðal annars titilinn bíll ársins árið 2014. Jón Kristófer S. Jónsson er nýr vörustjóri Skoda-merkisins og að sögn hans verður öll Octavia-línan kynnt hér á landi í september á næsta ári. „Við erum því miður ekki komnir með verð ennþá en þau ættu að vera ljós upp úr áramótum svo að áhugasamir kaupendur geta þá farið að gera pantanir í bíla,“ segir Jón Kristófer. „Þess má geta að við fáum bílinn strax í tengiltvinnútfærslu og verðum eitt af fyrstu löndum Evrópu til að fá hann þannig. Einnig verður öll línan strax fáanleg, bæði sem langbakur (Combi) og í lengri útgáfu (Limo),“ segir Jón Kristófer einnig. Útlitið er nú orðið keimlíkt Superb og Scala og er bíllinn búinn díóðuljósum að framan sem staðalbúnaði. Þrátt fyrir að bíllinn sé lægri en áður er hann rúmbetri að sögn tæknimanna Skoda. Hann er 4.690 mm að lengd, bæði sem hlaðbakur og langbakur sem er 19 mm lengra en fyrri kynslóð. Auk þess er hann 15 mm breiðari sem þýðir að farangursrými er nú 30 lítrum stærra. Tveir 10,25 tommu skjáir eru í bílnum og framrúðuskjár í sumum útgáfum. Bíllinn er nettengdur og í fyrsta skipti er þrískipt miðstöð eins og í Superb.Stafrænt mælaborð er mun fullkomnara og á upplýsingaskjá fyrir miðju má sjá í rauntíma ýmsar upplýsingar í þrívídd, eins og aðvífandi umferð.Bíllinn er byggður á sama undirvagni og ný kynslóð Golf sem þýðir að hann verður fáanlegur einnig með mildri tvinntækni auk tengiltvinnútgáfu. Tengiltvinnútgáfan verður með 1,4 lítra bensínvél og 101 hestafls rafmótor. Sjálfskiptingin við þá útfærslu er sex þrepa og hestöflin 201 talsins og rafhlaðan með 55 km drægni. Minnsta fáanlega vélin er eins lítra bensínvél með forþjöppu sem skilar 108 hestöflum, en einnig er 1,5 lítra bensínvél fáanleg, einnig með forþjöppu sem skilar 148 hestöflum. Stærsta bensínvélin er tveggja lítra TSI-vél sem skilar 187 hestöflum sem kemur þá með fjórhjóladrifi og sjö þrepa DSG-sjálfskiptingu. Aðeins ein tveggja lítra dísilvél er í boði en hún kemur í þremur aflútfærslum. Sú aflminnsta er 114 hestöfl, svo kemur 148 hestafla útfærsla og loks 197 hestafla með fjórhjóladrifi og sjálfskiptingu. Sú útfærsla kemur bílnum í hundraðið á aðeins 7,1 sekúndu.
Birtist í Fréttablaðinu Bílar Mest lesið Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Innlent Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Erlent Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES Innlent Launmorð á götum New York Erlent Konfektið í hæstu hæðum Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Innlent Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Erlent Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Innlent Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent