Íslendingur eftirlitsmaður hjá íslenskum dómara í Euroleague og frumraun Ísaks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2019 14:00 Ísak Ernir Kristinsson. Vísir/Bára
Íslenskir dómarar verða í eldlínunni í Evrópu í kvöld í verkefnum hjá FIFA þar á meðal mun einn íslensku dómari dæma sinn fyrsta leik sem FIBA-dómari. Dómarnir eru Davíð Tómas Tómasson og Ísak Ernir Kristinsson, sem dæma leiki í Lettlandi og Danmörku og þá verður Rúnar Birgir Gíslason eftirlitsmaður í Lettlandi. Rúnar Birgir Gíslason verður einmitt eftirlitsdómari á leiknum sem Davíð Tómas Tómasson dæmir með en þar á ferðinni leikur í Euroleague kvenna í Riga í Lettlandi. Heimakonur í TTT Riga taka þar á móti franska liðinu Bourges Basket. Meðdómarar Davíðs Tómasar verða Elena Chernova frá Rússlandi og Vladyslav Isachenko frá Úkraínu. Bæði liðin hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum og eru því enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri í Euroleague í vetur. Ísak Ernir Kristinsson fékk nýlega réttindi sem alþjóðlegur FIBA dómari og mun í kvöld dæma sinn fyrsta leik í verkefni fyrir FIBA, Alþjóða körfuboltasambandið. Ísak Ernir verður einn af þrem dómurum í leik Bakken Bears frá Danmörku og Kataja Basket frá Finnlandi í FIBA Europe Cup. Leikurinn fer fram í Risskov í Danmörku. Meðdómarar Ísaks verða þeir Charalampos Karakatsounis frá Grikklandi og Valentin Oliot frá Frakklandi en eftirlitsmaðurinn er Dainis Grinbergs frá Lettlandi.
Körfubolti Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Keflavík - Njarðvík 93-83 | Montrétturinn Keflvíkinga Körfubolti ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti Körfubolti Fleiri fréttir ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Keflavík - Njarðvík 93-83 | Montrétturinn Keflvíkinga Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Toppliðið lék sér á lokakaflanum Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum Sjá meira