Brentford hafði betur gegn QPR Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 28. október 2019 21:45 Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Brentford vísir/getty QPR missti af mikilvægum stigum í toppbaráttunni í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Brentford. Brentford komst yfir á 23. mínútu með marki frá Ollie Watkins og var það markið sem skildi liðin að í hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks jafnaði Grant Hall fyrir QPR með marki úr hornspyrnu. Brentford fékk vítaspyrnu á 59. mínútu, Said Benrahma fór á punktinn og hamraði boltann í netið og kom Brentford yfir á nýjan leik. Í uppbótartíma innsiglaði Watkins vo sigurinn með marki úr skyndisókn, lokatölur 3-1 fyrir Brentford. Brentford fer upp í 12. sæti deildarinnar með sigrinum. QPR er með 23 stig í 8. sæti, stigi frá sjötta sætinu og tveimur stigum frá PNE í öðru sætinu. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti