Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsti nauðungarsölu á glæsilegu einbýlishúsi á Arnarnesi í lok vikunnar. Húsið, Blikanes 22, er í eigu athafnamannsins Jóns Ragnarssonar í gegnum félag hans, Hótel Valhöll ehf. Kastljós fjölmiðla hefur reglulega beinst að Jóni, nú síðast fyrir nokkrum árum þegar hatrömm átök urðu í kjölfar þess að veitingastaðnum Caruso var úthýst úr fasteign í eigu Jóns.
Í sumar greindi Stundin frá því að annar athafnamaður, Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi Sæmarks, hefði selt Blikanes 22 til Hótel Valhallar ehf. fyrir 185 milljónir króna. Salan gekk í gegn rúmum mánuði áður en eignir Sigurðar Gísla voru kyrrsettar vegna umfangsmikillar rannsóknar á meintum skattalagabrotum hans. Sú kyrrsetningargerð hvílir þó enn á húsinu.
Sé sagan skoðuð bendir ýmislegt til að einhvers konar fjárhagsleg bölvun hvíli á eigninni því húsið hefur ítrekað verið auglýst á nauðungarsölu undanfarna áratugi. Frá árinu 1999 hafa sex eigendur þurft að þola hamarshögg yfirvaldsins í húsakynnum sínum eða hótanir þar um. Síðustu ár hefur þó allt verið með nokkuð kyrrum kjörum en núna virðist friðurinn úti.
Barningur á Blikanesi

Tengdar fréttir

Báðir aðilar gera tilkall til eigna í fyrrum húsnæði Caruso
„Samkvæmt leigusamningi eru lausamunir allir í eigu leigusala,“ segir lögmaður húseigenda.

Fyrrum leigusala Caruso gert að greiða 750 þúsund
Eigandi húsnæðisins þar sem Caruso var áður til húsa þarf að greiða málskostnað í máli hans gegn eiganda staðarins.

Reka dómsmál til að fá að sækja milljónaeignir inn í fyrra húsnæði Caruso
Rekstarfélag Caruso vill fá að sækja eigur inn í fyrra húsnæði staðarins eftir að hafa verið læstir þar úti í desember.