Tveimur kajakræðurum bjargað um borð í TF-EIR Jóhann K. Jóhannsson skrifar 23. september 2019 21:44 Áhöfnin á TF-EIR sinnti útkallinu. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út vegna tveggja manna sem lentu í vandræðum á kajökum í Stóru Laxá við Kerlingarfoss. Ásgeir Erlendsson, upplýsingarfulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti að þyrlan TF-EIR sé á leiðinni á vettvang. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir útkallið hafa borist rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Nær allar björgunarsveitir í Árnessýslu sinna útkallinu. Hann segir að björgunarsveitarmenn ekki komna á staðinn og að björgunaraðilar séu í sambandi við þá. Hann segir að kajakræðararnir séu ekki slasaðir og halda kyrru fyrir á þeim stað sem þeir eru. Búist er við að björgunarsveitir komist að mönnunum á næsta hálftímanum. Uppfært kl. 22:05 Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur fundið mennina og tekið þá um borð í þyrluna.Uppfært kl. 22:23 Áhöfn þyrlunnar fann mennina, með hitamyndavél, skömmu fyrir klukkan tíu. Fjórum mínútum síðar voru þeir komnir um borð og ákveðið var að fljúga með þá til Reykjavíkur. Eins og áður segir eru þeir óslasaðir. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur öðrum viðbragðsaðilum verið snúið við.
Björgunarsveitir Bláskógabyggð Landhelgisgæslan Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Innlent Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Innlent Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Innlent Vextir og kosningar í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu „Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Sjá meira