Skrifað undir samkomulag herforingja og mótmælenda í Súdan Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 17. ágúst 2019 19:09 Súdanir fagna undirritun samningsins. AP
Herforingjastjórnin í Súdan, sem hefur farið með völd í landinu síðan Omar al-Bashir forseta var steypt af stóli í apríl, og mótmælendahreyfingin, sem mótmælt hefur bæði stjórn al-Bashir og herforingjastjórninni, skrifuðu í dag undir samning um deilingu valda. Mynda á nýtt þjóðarráð þar sem fulltrúar mótmælenda og herforingjastjórnarinnar munu deila völdum þar til blásið verður til almennra kosninga. Mohamed Hamdan „Hemeti“ Dagolo, sem talinn er vera valdamesti maður herforingjaráðsins, jafnvel Súdan, hefur lýst því yfir að hann fallist á skilmála samningsins. Mótmæli hafa staðið yfir í Súdan síðan í desember og hafa mótmælendur lagt áherslu á aukið lýðræði síðan einræðisherrann Omar al-Bashir var rekinn frá völdum í apríl. Forsætisráðherrar Eþíópíu og Egyptalands og forseti Suður-Súdan voru meðal þeirra þjóðarleiðtoga sem voru viðstaddir undirskriftinni. Samningurinn kveður á um að sex fulltrúar mótmælenda og fimm fulltrúar herforingja muni stjórna landinu þar til kosningar verða haldnar. Formennska ráðsins mun skiptast á milli herforingja og mótmælenda reglulega næstu þrjú árin en kosningar á að halda innan þriggja ára. Mótmælendur munu velja forsætisráðherra sem mun taka við embættinu í næstu viku.
Súdan Tengdar fréttir Samkomulag í Súdan Herforingjastjórnin sem hefur verið við völd í Súdan frá því Omar al-Bashir var steypt af stóli í apríl síðastliðnum komst í gær að samkomulagi við stjórnarandstöðuna í landinu um að fylkingarnar tvær muni deila völdum. 6. júlí 2019 08:00 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira
Samkomulag í Súdan Herforingjastjórnin sem hefur verið við völd í Súdan frá því Omar al-Bashir var steypt af stóli í apríl síðastliðnum komst í gær að samkomulagi við stjórnarandstöðuna í landinu um að fylkingarnar tvær muni deila völdum. 6. júlí 2019 08:00