Útlit fyrir þurrk næstu tíu daga Birgir Olgeirsson skrifar 1. ágúst 2019 15:46 Þurr norðanaustanátt verður ríkjandi næstu tíu daga gangi spárnar eftir. Vísir/Vilhelm
Háþrýstisvæði verður hér ríkjandi fram yfir helgi og jafnvel lengur. Norðaustanátt er spáð í framhaldinu og hún af fremur þurru tagi. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á vefnum Blika.is en þar fjallar hann um tvö kort úr tveimur ólíkum reiknilíkönunum sem bæði gefa til kynna að þurrt verði til 10. ágúst í það heila tekið á landinu. Bandaríska reiknilíkanið gerir ráð fyrir uppsafnaðri úrkomu um eða innan við 5 millimetra þessa tíu daga í spánni. Ef spáin gengur eftir fellur vart dropi á Vestfjörðum og en verulega uppsafnaða úrkomu er hins vegar að sjá austur yfir Atlantshaf á breiðu belti suður undan og inn yfir Bretlandseyjar og meginland Evrópu. Eins nánast alveg þurrt á Grænlandi og væntanlega sólríkt einnig, skrifar Einar. Evrópska líkanið gerir ráð fyrir 0 til 25 prósentum af meðalúrkomu hér við land en þó stutt í vætu suður af landinu. „Þessi spá er afar eindregin hvernig sem á það er litið! Til samanburðar er rétt að hafa í huga að 10 daga úrkoma á þessum tíma er að jafnaði um 10 mm þar sem þurrast er upp í 30 mm suðaustanlands,“ skrifar Einar á vef sinn Blika.is.
Veður Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Sjá meira