Blikastúlkur byrja vel í Meistaradeildinni í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2019 10:50 Agla María Albertsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í sigri Blika í dag. Vísir/Daníel
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu 4-1 sigur á ísraelsku meisturunum í ASA Tel Aviv í fyrsta leik sínum í undankeppni Meistaradeild Evrópu en riðill Blika er spilaður í Bosníu og Hersegóvínu. Agla María Albertsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik en hin mörkin skoruðu þær Alexandra Jóhannsdóttir og Hildur Þóra Hákonardóttir. Sigur Blika var sannfærandi en liðið komst yfir eftir fjórar mínútur, var komið í 2-0 eftir 25 mínútur og staðan var orðin 4-0 fyrir Blika þegar ísraelsku stelpunum tókst að minnka muninn. Alexandra Jóhannsdóttir kom Breiðabliki í 1-0 strax á 4. mínútu eftir stoðsendingu frá Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Agla María Albertsdóttir skoraði annað markið á 25. mínútu eftir undirbúning Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur og Blikar voru 2-0 yfir í hálfleik. Hildur Þóra Hákonardóttir skoraði þriðja markið á 60. mínútu eftir hornspyrnu Öglu Maríu og Agla María skoraði síðan sjálf úr vítaspyrnu sex mínútum seinna eftir að ísraelskur varnarmaður hafði brotið á Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur innan teigs. Shira Elinav minnkaði muninn í 4-1 aðeins fjórum mínútum eftir að Blikarnir skoruðu fjórða markið sitt. Breiðablik mætir næst Dragon 2014 frá Norður-Makedóníu á laugardaginn en lokaleikurinn er síðan á móti SFK 2000 frá Bosníu á þriðjudaginn kemur. Efsta liðið í riðlinum kemst áfram í 32 liða úrslitin.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira