Enski boltinn

Gylfi byrjaði í tíðindalitlum leik gegn Wigan

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi lék fyrri hálfleikinn gegn Wigan.
Gylfi lék fyrri hálfleikinn gegn Wigan. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton sem gerði markalaust jafntefli við Wigan Athletic á DW-vellinum í æfingaleik í kvöld.

Leikurinn var afar rólegur og fátt markvert gerðist. Gylfa var skipt af velli í hálfleik ásamt átta öðrum leikmönnum Everton.

Enski landsliðsmaðurinn Fabian Delph, sem Everton keypti frá Manchester City fyrr í mánuðinum, lék sinn fyrsta leik fyrir Bítlaborgarliðið í kvöld.

Everton frumsýndi líka nýjan appelsínugulan varabúning í leiknum í kvöld. Hér fyrir neðan má sjá mynd af Delph í búningnum.



Næsti leikur Everton er gegn Sevilla á laugardaginn. Everton hefur unnið einn af fjórum leikjum sínum á undirbúningstímabilinu og gert þrjú jafntefli, þar af tvö markalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×