Skoðun

Málfrelsi þolenda

Anna Lotta Michaelsdóttir, Elísabet Ýr Atladóttir og Helga Þórey Jónsdóttir og Sóley Tómasdóttir skrifa
Í kjölfar meiðyrðadóms í Hlíðamálinu, þar sem tvær konur voru dæmdar til að greiða hundruð þúsunda í miskabætur til kærðra manna og annað eins í málskostnað, settu undirritaðar af stað söfnun í Málfrelsisjóð á Karolinafund. Sjóðnum er ætlað að draga úr ótta kvenna og jaðarsetts fólks við að tjá sig um reynslu sína og upplifanir án þess að fjárhagsáhyggjur bætist við það andlega álag sem fylgir því að tala um kynbundið ofbeldi.

Sláandi viðbrögð

Viðbrögðin hafa farið fram úr okkar björtustu vonum, en í þessum rituðu orðum hefur 90% af markmiði söfnunarinnar verið náð. Fólki misbýður að réttarkerfinu sem ítrekað bregst þolendum skuli vera beitt gegn þeim gegnum skaðabótarétt í þokkabót. Okkur þykir vænt um þetta skref vitundarvakningar um kynbundið ofbeldi sem lýtur að kerfisbundinni þöggun þolenda.

Undanfarna daga hafa svo fjölmargar konur leitað til okkar vegna mögulegs stuðnings. Konur sem hafa kært ofbeldi en málin verið látin niður falla. Konur sem hafa ekki þorað að segja frá af ótta við kerfið sem varði þær ekki. Konur sem vilja svo gjarnan að samfélagið heyri um veruleika kvenna og jaðarsetts fólks, um allar nauðganirnar sem eru þaggaðar á ólíkum stöðum í kerfinu. Konur sem finna þegar til valdeflingar við það eitt að vita af mögulegum sjóði sem gæti komið í veg fyrir gjaldþrot ef þær einhverntímann ákveða að tala.

Veruleiki kvenna

Kynbundið ofbeldi litar veruleika kvenna og jaðarsetts fólks alla daga á Íslandi og nauðganir eru daglegt brauð. Og þótt einhver héraðsdómari haldi því fram að réttarríkið standi undir nafni og að lögin nái jafnt til allra er langt frá því að sú sé raunin. Þrátt fyrir aðgerðir velviljaðra kvenna innan lögreglu og réttarkerfis ríkir þar karllæg menning og viðmiðin eru karllæg. Trúverðugleiki er afstæður, þar sem einstaklingur sem kærir hjólastuld er tekinn alvarlegar en einstaklingur sem kærir nauðgun. Sama gildir um sönnunarbyrði, skýr og vel þekkt sálfræðileg einkenni þolenda ofbeldis eru ekki tekin trúanleg á meðan sálrænar afleiðingar ærumeiðinga teljast grafalvarlegar.

Saklaus uns sekt er sönnuð

Þöggun réttarkerfisins á reynsluheimi og veruleika kvenna og jaðarsetts fólks verður að linna. Það verður að skapa svigrúm fyrir þetta fólk til að greina frá reynslu sinni og upplifunum og þeim kærum sem þær hafa lagt fram hvernig sem lyktir mála urðu. Tími samstöðu er runninn upp þar sem við leyfum nógu mörgum sögum að hljóma til að samfélagið átti sig á alvarleika nauðgunarmenningarinnar sem við búum við. Til að svo megi verða þurfum við á öflugum málfrelsissjóði að halda sem getur dekkað aðför meintra stjörnulögfræðinga og umbjóðenda þeirra að frelsi kvenna og jaðarsetts fólks. Við hvetjum ykkur öll til að heita á Málfrelsissjóðinn á Karolinafund og sýna samstöðu með þolendum.

Höfundar eru stofnendur söfnunar í Málfrelsissjóð á Karolinafund.




Skoðun

Sjá meira


×