Játar að hafa misnotað nemanda sinn Sylvía Hall skrifar 11. júní 2019 20:30 Zamora skilaði inn kennsluréttindum sínum í desember á síðasta ári. Lögreglan í Maricopa County/Getty
Brittany Zamora, 27 ára gamall kennari í Arizona í Bandaríkjunum, hefur játað að hafa átt í kynferðislegu sambandi við þrettán ára gamlan nemanda sinn. Þetta kemur fram á vef People. Zamora var handteinn í mars á síðasta ári eftir að foreldrar drengsins höfðu samband við yfirvöld vegna málsins. Sagði stjúpmóðir drengsins hann hafa hagað sér „grunsamlega“ og viljað loka að sér á kvöldin. Í kjölfarið lét stjúpmóðirin setja foreldraforrit sem gerði henni kleift að fylgjast með skilaboðum í síma drengsins. Hún hafi séð fjölda óviðeigandi skilaboða frá kennaranum og krafið hann svara og hann hafi játað að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Zamora. Samkvæmt lögreglu hafði hún sent drengnum nektarmyndir af sjálfri sér og sambandið hafi orðið grófara með tímanum. Dæmi eru um að hún hafi sýnt bekknum kennslumyndbönd á meðan hún hafi setið aftast með drengnum og snert hann á óviðeigandi hátt. Þá hafði hún beðið vin hans að fylgjast með því að enginn kæmi í herbergi þar sem hún hugðist stunda kynlíf með drengnum. Zamora skilaði inn kennsluréttindum sínum í desember á síðasta ári og hefur verið ákærð fyrir barnamisnotkun og að hafa haft samræði við barn undir lögaldri. Hún á yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi.
Bandaríkin Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Fleiri fréttir Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Sjá meira