UNICEF hefur byltingu gegn ofbeldi Birgir Olgeirsson skrifar 22. maí 2019 11:27 Myndbandið byrjar á því að sýna ung börn skemmta sér í feluleik en þegar líður á myndbandið eru börn sýnd sem reyna að fela sig fyrir gerendum.
Í dag hóf UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, átak gegn ofbeldi á börnum á Íslandi. Lykilmyndband átaksins varpar hulunni af feluleiknum sem ríkir í samfélaginu gagnvart ofbeldi á börnum. Átakinu fylgir ákall til almennings um að ganga í breiðfylkingu fólks sem tekur afstöðu gegn ofbeldi á börnum. Myndbandið byrjar á því að sýna ung börn skemmta sér í feluleik en þegar líður á myndbandið eru börn sýnd sem reyna að fela sig fyrir gerendum. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan og hægt er að skrifa undir ákallið á unicef.is.„Myndbandið fjallar um þann feluleik sem við teljum ríkja gagnvart ofbeldi á börnum, feluleik sem á sér margar birtingarmyndir,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi, í tilkynningu frá Unicef. „Feluleikurinn lýsir sér meðal annars í því að við fullorðna fólkið bregðumst of sjaldan við þegar við sjáum, heyrum eða okkur grunar að barn sé beitt ofbeldi, hvort sem það er inni á heimilum, í búðinni, í blokkinni eða í bæjarfélaginu,“ segir Steinunn. Feluleikurinn birtist auk þess í því að stjórnvöld hafa hingað til ekki tekið á ofbeldi gegn börnum af nægilegri festu og ekki haft fullnægjandi eftirlit með umfangi vandans, sem er forsenda þess að hægt sé að vinna markvisst gegn ofbeldinu. „Ég held að flest okkar geti tengt við atvik þegar við vissum ekki hvort væri best að skipta sér að eða láta kyrrt liggja. Í flestum tilfellum er það vegna þess að fólk einfaldlega veit ekki hvað er best að gera,“ segir Steinunn. Dæmin sýna einnig að mörg börn reyna að segja frá ofbeldinu áður en nokkuð er gert á meðan sum þeirra deila reynslu sinni aldrei með neinum fyrren á fullorðinsárum.Bylting fyrir börn á Íslandi Samhliða átakinu gefur UNICEF út nýja tölfræði sem teiknar upp mynd af þróun ofbeldis gegn börnum hér á landi og afleiðingum þess síðastliðinn áratug. Þar kemur fram að 16,4% barna verða fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára afmælisdaginn sinn. „Að þurfa að burðast með slíkan sársauka getur haft alvarlegar afleiðingar á barnið til frambúðar. Þess vegna boðum við hjá UNICEF til byltingar fyrir börn og viljum að allt samfélagið standi saman til að stöðva feluleikinn, læri að bregðast við ofbeldi og þrýsti á stjórnvöld að standa vaktina,“ segir Steinunn. Myndbandinu fylgir ákall til almennings um að mynda breiðfylkingu fólks sem hefur ekkert umburðarlyndi fyrir ofbeldi. Allir sem skrifa undir þetta mikilvæga ákall fá sendar upplýsingar um hvernig á að bregðast við þegar grunur leikur á að barn sé beitt ofbeldi. Hægt er að skrifa undir ákallið hér. UNICEF mun síðan nota slagkraftinn sem myndast með undirskriftunum til að þrýsta á stjórnvöld að stofna Ofbeldisvarnarráð sem rannsakar og safnar markvisst upplýsingum um ofbeldi gegn börnum á Íslandi og beitir sér fyrir forvörnum og fræðslu. Auk þess setur UNICEF fram kröfu um að öll sveitarfélög landsins séu með skýra viðbragðsáætlun gegn ofbeldi.„Öll börn eiga rétt á ofbeldislausri æsku“ „Öll börn eiga rétt á ofbeldislausri æsku. Við vonumst til að myndbandið hreyfi við fólki og að við náum að búa til breiðfylkingu fólks sem beitir sér fyrir réttindum barna. Saman getum við stöðvað þennan feluleik og þrýst á stjórnvöld að standa vaktina,“ segir Steinunn. Í myndbandinu leika fjöldi barna sem öll gáfu vinnu sína til málefnisins. Það eru þau Agata Árnadóttir Coadou, Elvar Gauti Arnarsson, Kolfinna Tía Steindórsdóttir, Kormákur Kaj Steindórsson, Hrafntinna Mía Steindórsdóttir, Einar Sveinn Nordahl, Sigrún Ásta, Urður Steinarsdóttir, Friðrik Atli Jónsson, Daði Rafn Grétarsson, Kjartan Páll Kolbeinsson, Bríet Sóley Valgeirsdóttir, Anna Sindradóttir og Jóhann Daði Jónsson. Auglýsingastofan Pipar vann markaðsátakið og myndbandinu er leikstýrt af Hannesi Þór Arasyni hjá SKOT. Allir sem komu að gerð átaksins og myndbandsins gáfu stóran hluta vinnu sinnar. Kvika, sem er velunnari heimsforeldra UNICEF, kom inn með dýrmætan stuðning við gerð myndbandsins.
Ofbeldi gegn börnum Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Sex ára stúlka setti heimsmet Erlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fá loksins að fagna aldarafmælinu Innlent Fleiri fréttir Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við Sjá meira