Hitaveituvatnið leiddi til risvandamála útrásarvíkinga Jakob Bjarnar skrifar 27. maí 2019 14:16 Ekki var andskotalaust að vera íslenskur útrásarvíkingur, ef marka má frásögn Sverris Agnarssonar sem segir sögu af samræðum tveggja frægustu útrásarvíkinganna, sem hann komst ekki hjá að heyra. einkasafn/getty
Svo virðist sem íslenska hitaveituvatnið hafi valdið útrásarvíkingum á velmektarárum þeirra fyrir hrun 2008 hinum mestu vandræðum. Og óvæntum ef marka má frásögn Sverris Agnarssonar. Hann komst að því við að heyra tal tveggja þeirra frægustu á Saga Class frá þeim tíma en lyktin af íslenska hitaveituvatninu olli vandræðum í samskiptum víkinganna við dýrar fylgdarmeyjar sem svo leiddu til risvandamála. Þannig má víst vera að margt er mannanna bölið. Sverrir er ef til vill þekktastur fyrir að vera fyrrverandi formaður Félags múslíma á Íslandi en hann var rannsóknarstjóri á Nyhedsavisen á árunum fyrir 2008. Og þannig virkur þátttakandi í útrásarævintýrinu. Sverrir er nú að taka saman minnispunkta sína og birta í brotum á samfélagsmiðlum. Sverrir segist, í samtali við Vísi, ætla að halda því fyrir sig hverjir þessir útrásarvíkingar voru nákvæmlega. „En, ég veit að margir þekkja vandamálið.“ Frásögn Sverris má heita enn eitt púslið í frásagnir af nánast úrkynjuðum lifnaðarháttum þessara nýríku kaupsýslumanna. Sem óvænt böðuðu sig bókstaflega í seðlum og ekkert var of dýrt. Sverrir greinir frá því að sjálfur var hann á góðum launum hjá Dagsbrún sem rannsóknarstjóri Nyhedsavisen og að hann hafi farið um það bil 120 sinnum milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar á þessum árum.Raunir landsliðs útrásarinnar „Félagsskapurinn í vélinni var alltaf úr landsliði útrásarinnar og flestir léttkenndir enda heimferð á föstudagskvöldi. Ég sat hjá seðlabankastjórum, þyrlueigendum, viðskiptafjörfum og öðrum fjármálatröllum. Þetta var upplýsandi og yfirleitt skemmtilegt enda firrur og fjarstæða mín helstu áhugamál.“Gaman meðan á því stóð. Útrásarvíkingarnir voru strákarnir okkar lengi vel, snjallir grallarar eða allt þar til í október 2008.HalldórÞá beinir Sverrir kastljósinu að tveimur þeirra allra frægustu sem eitt sinn sátu fyrir aftan hann og voru að ræða vandamál sem greinilega skipti þá miklu. „En það fólst í ofurnæmni dýrustu fylgilagsstúlknanna í London en þær dýrustu og flottustu voru að sjálfsögðu jafn fíngerðar eins og prinsessan á bauninni sem fann fyrir henni í gegnum 100 rúmdýnur,“ skrifar Sverrir og heldur áfram:Heita vatnið rústar næturgleði víkinganna „Glæsimeyjarnar fitjuðu upp á nefið og kvörtuðu yfir prumpulykt eða jafnvel kúkalykt af okkar mönnum í fleiri daga eftir þeir komu úr skreppitúrum frá Íslandi þar sem þeir höfðu farið í sturtu svo ekki sé tala um sund og inn í lyktarheim viðkvæmra stássstúlkna ruddist mýralyktin af bjargvætti Íslands - heita vatninu.“ Sverrir segir það hreinlega hafa verið þunglyndislegt að heyra „að þessir skörpustu hugsuðir útrásarinnar höfðu ekki fundið neina lausn, edikböð og rándýr ilmvötn dugðu ekki til frekar en fleiri dýnur í rúm prinsessunnar forðum því mýrin eins og baunin vað ekki falin heldur endalaust afhjúpuð af fegurstu nefjum Norður Evrópu og rústaði næturgleði víkinganna sem niðurlægðir af náttúru Ísland fengu óviðráðanlega riserfiðleika.“
Einu sinni var... Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira