Mæta með grillveisluna á staðinn Matarkompaní kynnir 16. maí 2019 14:15 Grillmeistarar Matarkompanísins galdra fram safaríkar steikur fyrir hópa. Nodric photos/Getty
Matarkompaníið býður upp á fjölbreytta grillpakka þar sem grillmeistarar mæta á staðinn og grilla fyrir hópa. Þjónustan er stórsniðug fyrir starfsmannahópa sem vilja gera sér glaðan dag, vinahópa eða þegar stórfjölskyldan kemur saman. „Grillþjónustan er sniðin að hópum frá um það bil 25 manns og upp í 150 manns. Við erum með nokkrar samsetningar á grillpökkum sem hægt er að skoða á heimsíðunni okkar en við komum líka til móts við séróskir fólks ef það vill grilla eitthvað annað en pakkarnir innihalda, eða blanda pökkunum saman. Við græjum líka allt meðlæti,“ útskýrir Guðmundur Óli Sigurjónsson, eigandi Matarkompanís.Guðmundur Óli Sigurjónsson, eigandi Matarkompanís.Matarkompaní„Úrvalið á pökkunum er margslungið. Við bjóðum upp á 5 grillpakka með lambalæri, nautalund, kalkún og fleira en svo erum við líka með úrval af hamborgara- og pylsupökkum.“ Panta þarf með minnst fimm daga fyrirvara svo tími gefist til að útvega hráefnið, marinera kjöt og undirbúa. Þegar að veislunni kemur þarf viðskiptavinurinn ekkert að útvega nema diska og glös. „Við mætum yfirleitt tveir starfsmenn, annar að grilla og hinn að skera kjötið og fylla á sósur og salöt eins og þarf. Ef hóparnir eru stórir mætum við fleiri og setjum upp fleiri stöðvar þar sem kjötið er skorið svo enginn þurfi að standa lengi í röð. Við mætum með grill með okkur og sjáum um allt varðandi matinn og göngum svo frá að veislu lokinni,“ segir Guðmundur. „Fyrirtæki sem vilja verðlauna starfsfólk sitt nýta sér gjarnan þjónustuna. Við höfum til dæmis grillað fyrir 150 manna vinnuflokk sem var að fagna vel unnu verki og mættum bara beint á vinnusvæðið með grillið,“ segir Guðmundur.Nánari upplýsingar er að finna á matarkompani.is. Þessi kynning er unnin í samstarfi við Matarkompaní.
Matur Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Fleiri fréttir Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira