Þungunarrofsfrumvarp ýmist talið stærsta kvenfrelsismál aldarinnar eða siðferðislega rangt Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. maí 2019 16:20 Þungunarrofsfrumvarp heilbrigðisráðherra verður áfram rætt í velferðarnefnd Alþingis en næsti fundur er á mánudag. FBL/EYÞÓR „
Við erum búin að ræða þennan vikufjölda fram og til baka,“ segir Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar um heimild fyrir þungunarrofi fram að lokum 22. viku óháð því hvaða aðstæður liggja að baki vilja kvenna. Þetta segir Halldóra í samtali við fréttastofu en Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, óskaði eftir því í ræðu sinni í gær að málið færi aftur til velferðarnefndar að lokinni 2. umræðu þingsins en sem nefndarmaður á hún rétt á því. Málið verður áfram rætt á fundi nefndarinnar á mánudaginn.Frumvarp heilbrigðisráðherra var samþykkt á Alþingi að lokinni 2. umræðu nú síðdegis. Fjórða grein frumvarpsins, sem kveður á um að heimilt sé að rjúfa þungun að beiðni kvenna til loka 22. viku, reyndist mikið átakamál á þinginu. Fjórða greinin var þó samþykkt með 36 atkvæðum gegn 10. Þrír ráðherrar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, Bjarni Benediktsson fjármála-og efnahagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra. Átta þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, sjö úr Sjálfstæðisflokki og einn úr Framsóknarflokki. Halldóra er ekki viss hvað Anna Kolbrún vill ræða frekar en grunar að málið snúist um vikufjölda frumvarpsins sem hefur verið mest umdeilt í þinginu. Halldóru finnst málið með öllu útrætt. „Það tók mjög langan tíma í nefndinni að ræða þennan vikufjölda og mér fannst sem við værum komin á einhvern stað þar sem væri skilningur fyrir nauðsyn þess að hafa þetta í 22. vikum. Með 18. vikum værum við að takmarka núverandi rétt kvenna til þess að fara í þungunarrof,“ segir Halldóra. Hún ætlar að taka málið fyrir á mánudag og reyna í framhaldinu að koma málinu eins fljótt út úr nefndinni og hægt er. Sjálf fagnaði Halldóra frumvarpinu í ræðu sinni sem hún hélt um atkvæðagreiðsluna í dag. „Árið 1975 þegar núverandi löggjöf var samþykkt þá voru þrjár konur á þingi. Í dag erum við 24, við ættum að vera fleiri en við erum 24 og vonandi verður sú breyting á þessum lögum að við færum sjálfsákvörðunarréttinn til kvenna þegar kemur að ákvörðunum um þungunarrof.“ Halldóra segir frumvarpið tryggja sjálfsákvörðunarrétt kvenna upp að 22. vikum. Frumvarpið snúist þannig ekki um að víkka út heimildir heldur eingöngu um að tryggja rétt konunnar til að ráða sér sjálfri. „Mig langar til þess að þakka hæstvirtum heilbrigðisráðherra fyrir að leggja fram þetta mikilvæga frumvarp. Þetta er alveg magnað að við skulum loksins vera að færa þetta í rétt horf.“ Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni að frumvarpið skipaði stórum hópum í samfélaginu í andstæðar fylkingar. „Um er að ræða siðferðileg álitamál; trúarleg og lögfræðileg og menningarlegur bakgrunnur svífur yfir vötnunum.“ Hann sagði að frumvarpið væri bæði stórkostlegt réttindamál og sögulegt. Frumvarpið skipaði ekki eingöngu hópum í samfélaginu í andstæðar fylkingar heldur líka þingmönnum Alþingis. Á meðan flestir fögnuðu frumvarpinu og töluðu um sjálfsákvörðunarrétt kvenna voru nokkrir þingmenn, eins og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins sem sagðist líða illa yfir málinu því sér fyndist það siðferðilega rangt. „Með frumvarpinu er lagt til að fóstureyðingar verði heimilaðar til loka 22. viku þungunar burtséð frá því hvort um heilbrigt barn er að ræða á þeim tímapunkti eða ekki. Það felur í sér eingöngu geðþóttaákvörðun móður“. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata sagði að í dag stæðu þingmenn frammi fyrir því að greiða atkvæði um eitt stærsta kvenfrelsismál Alþingis á öldinni. Hún sagði að þrátt fyrir að frumvarpið væri gríðarlegt fagnaðarefni afhjúpaði það raunverulega afstöðu nokkurra þingmanna til kvenna og sérfræðinga. „Þessir háttvirtir þingmenn geta sagt „ég líka“ og „he for she“ en raunveruleg afstaða þeirra til kvenfrelsis birtist þegar greidd eru atkvæði um traust til sjálfsákvörðunarréttar kvenna til eigin líkama.“ Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kvartaði yfir því að þingmenn hefðu flissað undir ræðu hans um þungunarrof. Hann taldi að ástæðan fyrir því væri sú að hann nálgaðist málið út frá kristilegum grunni. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagðist vera á milli steins og sleggju. Hann vildi tryggja sjálfsforræði kvenna en segist samt þurfa að staldra við 22. vikna þröskuldinn. „Það eru líklegast fá mál sem eru viðkvæmari en spurningin um þungunarrof, eða fóstureyðingu, eins og ég hef vanist að tala um.“ Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins og nefndarmaður í velferðarnefnd Alþingis, lagðist gegn frumvarpinu og vill heldur að Alþingi ráðist í fræðslu og forvarnir. „Ég er einn af þessum körlum sem telja líf heilagt og ég er stoltur af því. Þess vegna mun ég segja nei við þessu frumvarpi.“ Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, sagðist sannarlega styðja frumvarpið. Það gerði þingflokkur Viðreisnar í heild sinni því málið snerist um einstaklingsfrelsi. „Ef við trúum á annað borð á það samfélag þar sem ríkir einstaklingsfrelsi og ábyrgð og við ráðum okkur sjálf og viljum byggja upp þannig samfélag.“ Frumvarpið snúist um frelsi konunnar til að ráða yfir eigin líkama, eigin lífi, eigin tilfinningum og eigin framtíð.
Alþingi Heilbrigðismál Þungunarrof Tengdar fréttir Óttast fjölda umsagna trúfélaga um frumvarp um þungunarrof Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafelags Íslands, er ósátt við að óskað hafi verið eftir umsögnum þrjátíu og fimm trúfélaga um frumvarp um þungunarrof. Hún óttast að neikvæðar umsagnir kunni að hafa áhrif á að frumvarpið verði að lögum. 22. janúar 2019 20:30 Þorsteinn bað Þórhildi Sunnu afsökunar á orðum sínum Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í morgun undir liðnum fundarstjórn forseta og bað Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, afsökunar á orðum sínum á Alþingi í gærkvöldi. 21. febrúar 2019 10:44 Telur þungunarrofsfrumvarp óverjandi og siðferðislega rangt Flokkur fólksins leggst gegn hugtakanotkuninni þungunarrof. 2. maí 2019 16:56 Velti fyrir sér hvort Þórhildur Sunna hefði reynslu af þungunarrofi Þórhildur Sunna spurði Þorstein að því hvaða forsendur hann teldi sig hafa fyrir því að halda því fram að ákvörðun um að fara í þungunarrof sé öllum konum þungbær. 20. febrúar 2019 23:29 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Fleiri fréttir Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sjá meira
Óttast fjölda umsagna trúfélaga um frumvarp um þungunarrof Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafelags Íslands, er ósátt við að óskað hafi verið eftir umsögnum þrjátíu og fimm trúfélaga um frumvarp um þungunarrof. Hún óttast að neikvæðar umsagnir kunni að hafa áhrif á að frumvarpið verði að lögum. 22. janúar 2019 20:30
Þorsteinn bað Þórhildi Sunnu afsökunar á orðum sínum Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í morgun undir liðnum fundarstjórn forseta og bað Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, afsökunar á orðum sínum á Alþingi í gærkvöldi. 21. febrúar 2019 10:44
Telur þungunarrofsfrumvarp óverjandi og siðferðislega rangt Flokkur fólksins leggst gegn hugtakanotkuninni þungunarrof. 2. maí 2019 16:56
Velti fyrir sér hvort Þórhildur Sunna hefði reynslu af þungunarrofi Þórhildur Sunna spurði Þorstein að því hvaða forsendur hann teldi sig hafa fyrir því að halda því fram að ákvörðun um að fara í þungunarrof sé öllum konum þungbær. 20. febrúar 2019 23:29