Aldrei betri en í leikjunum á móti ÍBV í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2019 16:30 Eyjakonur ráða ekker við Ragnheiði Júlíusdóttur. Vísir/Vilhelm
Framkonan Ragnheiður Júlíusdóttir hefur farið á kostum í fyrstu tveimur leikjunum í einvígi Fram og ÍBV í úrslitakeppni Olís deildar kvenna. Ragnheiður er með 20 mörk og 8 stoðsendingar í fyrstu tveimur leikjum einvígisins. Framliðið hefur unnið báða og kemst í lokaúrslitin með þriðja sigrinum en liðin mætast í Safarmýrinni í kvöld. Í síðasta leik sem Framliðið vann í Vestmannaeyjum var Ragnheiður Júlíusdóttir með 13 mörk úr aðeins 15 skotum sem gerir 86,7 prósent skotnýtingu. Þetta er þó ekki fyrstu kynni Eyjaliðsins af þrumuskotum Ragnheiðar því hún hefur farið kostum í öllum leikjunum á móti ÍBV í Olís deildinni á þessu tímabili. Ragnheiður hefur alls skorað 45 mörk í fimm leikjum Fram á móti ÍBV á þessu tímabili eða 9,0 að meðaltali í leik. Hún hefur einnig gefið 4,4 stoðsendingar að meðaltali og því komið samtals með beinum hætti að 13,4 mörkum að meðaltali í leik. Í hinum átján leikjum sínum á móti öðrum liðum deildarinnar er Ragnheiður aftur á móti með 6,2 mörk og 2,4 stoðsendingar að meðaltali í leik og hefur því komið með beinum hætti að 8,6 mörk í þeim leik eða næstum því fimm mörkum færra í hverjum leik. Leikur Fram og ÍBV hefst í kvöld klukkan 18.30 og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. Strax á eftir verður sýndur þriðji leikurinn hjá Val og Haukum. Bæði Fram og Valur tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn vinni þau leiki sína í kvöld.Ragnheiður Júlíusdóttir í Olís deild kvenna 2018/19:Á móti ÍBV 5 leikir 45 mörk - 9,0 í leik 22 stoðsendingar - 4,4 í leik 66 mörk sköpuð - 13,4 í leik 55,6% skotnýtingÁ móti öðrum liðum 18 leikir 111 mörk - 6,2 í leik 44 stoðsendingar - 2,4 í leik 155 mörk sköpuð - 8,6 í leik 48,3% skotnýting
Olís-deild kvenna Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira