Barcelona gerði markalaust jafntefli við Huesca í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag er liðin mættust í Huesca.
Barcelona var mun meira með boltann og fékk tækifæri til þess að vinna leikinn en heimamenn náðu að halda hreinu.
Börsungar eru á toppnum með ellefu stiga forskot á Atletico Madrid sem spilar nú við Celta Vigo.
Huesca er á botninum með 25 stig, fimm stigum frá öruggu sæti.
Messi hvíldur í markalausu jafntefli gegn botnliðinu
