Þriðji orkupakkinn er óvænt orðið helsta hitamál á Íslandi. Nú logar allt í háværum rökræðum um þetta mál – nokkuð sem enginn hefði fyrir um mánuði getað séð fyrir. En, hópnum sem stendur að Orkan okkar hefur heldur betur tekist að koma málinu á dagskrá.
Gömlu brýnin koma málum á dagskrá
Vísir vildi inna Guðna, sem er einn talsmanna hópsins, eftir því hvernig það megi vera að ekki er um annað talað.Að hópnum standa meðal annars fyrrverandi þungavigtarmenn úr pólitíkinni, ráðherra og þing- og fjölmiðlafólk: Hjörleifur Guttormsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Vigdís Hauksdóttir, Jón Bjarnason, Ólafur Ísleifsson, Ómar Ragnarsson, Ragnar Arnalds, Styrmir Gunnarsson, Haraldur Ólafsson og Ögmundur Jónasson.
Fyrrum einarðir andstæðingar eru nú samherjar. Málið flækir allar flokkspólitískar víglínur sem lesa má um í stjórnmálafræðinni. Þar er allt komið í eina bendu. Og, gömlu brýnin, sem mörg hver voru sest í helgan stein, virðast kunna þá kúnst að ná eyrum þjóðarinnar. Þeir eru sem ungir öðru sinni, komið blik í auga?
„Ögmundur er nú rómsterkur. Og það skiptir máli að fá verkstjórann [Jón Baldvin] sem gerði EES-samninginn til að koma fram og segja: Við erum komin á allt annan stað. EES-samningurinn snerist aldrei um auðlindir; orkuauðlindir, fallvötn eða hafið eða landbúnaðinn. En, nú erum við komin á allt annan stað, segir hann. Hann hafði alltaf hugsað sér sem krati og Íslendingur að Íslendingar ættu sínar auðlindir. Réðu þeim. Þannig að það er nú enginn vandi,“ segir Guðni. Og heldur áfram:

Menn að undirbúa sig fyrir gróðann
Heldur betur. Þjóðfélagið er á hvolfi vegna málsins. Allt leikur á reiðiskjálfi. Menn sáu þetta ekki fyrir.„Þetta er miklu verra en Icesave,“ segir Guðni. Honum er tíðrætt um Icesave þessa dagana sem og í þessu samtali. En, Vísir náði tali af honum þar sem hann var að aka niður Kambana. Ásamt konu sinni Margréti Hauksdóttur. „Hinn góði bílstjóri,“ segir Guðni en þau eru á leið í jarðarför gamals vinar, hreppstjóra í Árnessýslu.
„En, þetta er málið sem menn eru að undirbúa. Útlendingarnir eru að kaupa upp auðlindajarðir. Og Íslendingarnir líka. Íslendingarnir og útlendingarnir eru að búa sér til félög. Til að verða undirbúnir fyrir gróðann. Evrópusambandið hlær að þessum Íslendingum sem alltaf koma með þessa fyndnu setningu: Við setjum bara íslenskt ákvæði inn í málið. Það er ekki til úti í Evrópu. Þeir bara botna ekkert í því.“
Gefur lítið fyrir popúlistatal
En, nú hefur ykkur verið borið það á brýn að höfða óspart til ótta, kallaðir populistar, öfga-þjóðernishyggjumenn og einangrunarsinnar. Hvernig lætur það í þínum eyrum?„Þetta hljómar sem hin eilífa sinfónía þeirra manna sem vilja inn í Evrópusambandið og vilja þennan bísness. Hugsaðu þér í Icesave hvað við vorum vitlausir? Þeir fyrirlitu forsetann Ólaf Ragnar Grímsson, þessir menn, af því að hann vildi láta þjóðina ákveða. Þjóðin felldi það. Þjóðin er þá í hópi með okkur. Þannig að, þetta eru hin eilífu „rök“ að maður sé gamaldags, úreltur, á móti framtíðinni. Vilji fara inn í moldarkofanna. Þetta hljómar sem hin eilífðar sinfónía Evrópusinnanna og manna sem vilja komast í þennan bísness.“

Dreifir ekki slúðri um Guðlaug Þór
En, nú er ykkur jafnframt legið á hálsi að dreifa ósannindum, slúðursögum um Guðlaug Þór…„Ekki ég,“ skýtur Guðni inn í hraðmæltur.
… Þórðarson utanríkisráðherra, að hann eigi persónulegra hagsmuna að gæta?
„Nei. Ég er vinur Guðlaugs Þórs og tek aldrei þátt í neinni slíkri umræðu og væni hann ekkert um það. Hann er á þessari skoðun. Og honum datt enn í hug eins og mörgum öðrum þetta íslenska ákvæði. Og keyrir áfram.“
Guðni vendir þá kvæði sínu í kross:
„Og Þorstein Pálsson. Sem barðist gegn EES-samningnum af miklum krafti áður en Davíð koma á vettvang. Davíð sneri þeim öllum og kláraði EES-samninginn ásamt Jóni Baldvin. Bæði Davíð og Jón Baldvin eru á móti. En Þorsteinn hlær í hjarta sínu og er ægilega glaður.

Ekki til neitt sem heitir séríslenskt ákvæði
Guðni bendir á Icesave til marks um hvernig þetta allt saman gangi fyrir sig.„Hvað var í Icesave? Þeir margleyptu agnið og ætluðu að klára Icesave Alþingi gegn öllum þjóðarvilja. Og öllum. Hvað gerðu þeir í Evrópusambandsmálinu. Þeir sóttu um aðild og spurðu ekkert þjóðina. Þeir sóttu um aðild og fóru í gríðarlega vinnu úti í Evrópu. Í samtölum við Evrópusambandið. Meira að segja Össur [Skarphéðinsson] gafst upp. Hann sá að þetta var vonlaust. Það var ekki til neitt íslenskt ákvæði um landbúnað eða sjávarútveg. Össur fór bara til Kína.“
En, er kannski drifkraftinn í þessu að sækja til nostalgískrar sýnar til Icesavebaráttunnar?
„Jájá. Og þarna fer náttúrlega fyrir liði alveg gríðarlega öflugur fyrrverandi þingmaður, ungur að árum, Frosti Sigurjónsson. Sem hefur vakið oft þjóðarathygli fyrir sterkar skoðanir á ýmsum sviðum. Hann verður nú ekki vændur um að vera gamall og ruglaður. Nei.“

Segir samtökin ekki eiga krónu
Nú kostar fé að reka svona baráttu? Hvaðan koma peningarnir?„Við eigum ekki eina einustu krónu ennþá. Það er hægt að styrkja Orkan okkar með peningum. Það gerir þá almenningur. Það er engin fjáröflun farin í gang. Ég veit ekki hvað menn gera í því. Ég hygg að menn vilji skapa þá þjóðarstemmningu sem var í Icesave. Hún kom að vísu á óvart hversu öflug þjóðin var þá. Hugsaðu þér, Steingrímur og Jóhanna og Alþingi allt ætlaði að keyra þetta ofan í okkur.

Raforkureikningurinn hækkar og fáeinir græða
Og víst er að margir eru að svara kallinu. Þúsundir þegar gengið í hópinn á undanförnum dögum.„Ég held að það sé komið á einhverjum sólarhringum sex til sjö þúsund manns. Svo er þetta bara lítil þingsályktun. Það var þó frumvarp um Icesave sem varð að fara til forsetans.
Forsetinn réttir bara upp hendur og segir: Þetta kemur aldrei til mín. Þetta er þó stærsta mál Íslandssögunnar.Það á að afgreiða þetta með einni þingsályktun eins og málið sem ég flutti tillöguna um Snata. Íslenska hundinn. Það var samþykkt á Alþingi. Að rækta hann og verja líf hans.“
Eftir þá samþykkt hefjast síðari átökin, að sögn Guðna: „Landsvirkjun segir að sæstrengurinn, hann kemur. Og menn eru að kaupa upp landið. Svo kemur bara ný ríkisstjórn. Og segir í stjórnarsáttmála. Sæstrengurinn er stærsta afl fyrir Íslendinga. Svo hækkar raforkuverð. Og fáeinir einstaklingar græða.“