Breiðablik Lengjubikarmeistari eftir sigur á Val Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. apríl 2019 18:00 Íslandsmeistararnir tóku fyrsta titil tímabilsins vísir/daníel
Breiðablik er Lengjubikarsmeistari kvenna í fótbolta eftir sigur á Val í úrslitaleik á Eimskipsvellinum í Laugardal í dag. Leikurinn byrjaði eins vel og hægt var að óska sér fyrir Blika en Kristín Dís Árnadóttir skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik. Bæði lið áttu sín færi til þess að skora mark í fyrri hálfleiknum en það kom ekki. Snemma í seinni hálfleik gerði Málfríður Anna Sigurðardóttir sig seka um mistök þegar hún átti lélega sendingu út úr vörninni. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir komst inn í sendinguna, keyrði á markið og kláraði færið listilega. Breiðablik virtist ætla að sigla þægilegum sigri heim en á 87. mínútu færðist spenna í leikinn þegar Heiðdýs Lillýardóttir lenti í því óláni að skora sjálfsmark. Margrét Lára Viðarsdóttir átti skot sem að Sonný Lára Þráinsdóttir varði en hún varði boltann út í teiginn þar sem hann fór í Heiðdísi og í netið. Í uppbótartíma kláraði Karólína Lea hins vegar leikinn fyrir Breiðablik, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir átti frábæra sendingu inn á Karólínu sem kláraði færið. Breiðablik vann því 3-1 sigur og er Lengjubikarsmeistari.Klippa: Valur - Breiðablik 1-3
Íslenski boltinn Mest lesið Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Búin að þríbæta þrjátíu ára met Guðrúnar Sport Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Körfubolti Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Körfubolti Dramatík hjá Hákoni Fótbolti Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Enski boltinn Sjáðu Loga Geirs hengja Frakkann og tryggja sér titil Sport Fleiri fréttir Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sverrir frá Eyjum til FH „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Sjá meira