Higuain leggur landsliðsskóna á hilluna Henry Birgir Gunnarsson skrifar 29. mars 2019 17:00 Einn af síðustu landsleikjum Higuain var gegn Íslandi á HM. vísir/getty
Argentínski framherjinn Gonzalo Higuain hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna aðeins 31 árs að aldri. Higuain hefur skorað 31 mark í 75 landsleikjum með Argentínu. Hann hefur ekki spilað með landsliðinu síðan á HM síðasta sumar. „Ég hef tekið þessa ákvörðun því ég vil njóta lífsins enn frekar með fjölskyldunni minni. Ég vil njóta þess að eyða tíma með dóttur minni en vita á sama tíma að ég hafi gefið landi mínu allt sem ég gat,“ sagði Higuain sem er í láni hjá Chelsea frá Juventus. „Ég mun gefa allt sem ég á sömuleiðis til Chelsea. Það er það eina sem ég einblíni á núna. Enska úrvalsdeildin er frábær og ég nýt þess að spila þar.“ Higuain hefur oftar en ekki verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína með argentínska landsliðinu enda hefur það ekki náð þeim árangri sem til var ætlast af liðinu á stórmótum. „Fólk man oft frekar eftir færunum sem klúðruðust heldur en mörkunum sem eru skoruð. Ég man vel að fjölskylda mín tók það mjög nærri sér er ég var gagnrýndur verulega harkalega. Ég geng þó burt með höfuðið hátt enda lagði ég mig alltaf allan fram.“
Fótbolti Mest lesið Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Fótbolti „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Íslenski boltinn Bjarni Jó kveður Selfoss Íslenski boltinn Féll á lyfjaprófi á HM íslenska hestsins og missir silfur: „Eins og ég sé glæpamaður“ Sport Uppgjörið: Keflavík - Valur 79-88 |Frábær endurkomusigur hjá Val Körfubolti Dagskráin í dag: Skiptiborðið og Blikar í Evrópu Sport Valur vann stigalausu Stjörnuna Handbolti De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Fótbolti Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Bjarni Jó kveður Selfoss Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Dier stal stigi af svekktum City mönnum Ödegaard lagði Skytturnar upp til sigurs Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Stjarnan - FH 3-4 | FH endurheimti annað sætið Öruggt hjá Skjórunum en óvíst hver skoraði Arftaki Heimis fundinn: „Alltaf áhætta að gera breytingar“ „Mjög súr og dapur þegar hann hringdi í mig“ Erfitt að yfirgefa Þrótt en starfið hjá KSÍ of spennandi til að hafna því Arnar: Aðrir leikmenn framar en Jóhann Orri, Jóhann og Gylfi ekki með en Aron valinn Svona var fundur KSÍ þegar Arnar tilkynnti landsliðshópinn Drama í sænska landsliðinu: „Hann hefur svikið liðsfélaga sína“ Kaupa einn frægasta leikvang heims til þess að rífa hann Barcelona verður ekki refsað þótt þeir kaupi ekki Rashford Var Vinícius Júnior kallaður api eða kjáni? Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Fékk óvart rautt spjald „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Tottenham bjargaði stigi í Noregi „Það er allt mögulegt“ Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Sjá meira