LSR bætir við sig í HB Granda en Lífeyrissjóður verslunarmanna selur Kristinn Ingi Jónsson skrifar 27. febrúar 2019 08:30 Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins hefur á undanförnum sex mánuðum bætt við sig í HB Granda með kaupum á samanlagt ríflega 0,9 prósenta hlut í útgerðinni, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa hennar. Á meðan hafa aðrir lífeyrissjóðir í hópi stærstu hluthafa HB Granda minnkað lítillega hlut sinn. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins fór í lok janúar sl. með 14,6 prósenta hlut í HB Granda, að virði um 7,9 milljarða króna, en til samanburðar nam eignarhlutur sjóðsins 13,7 prósentum í lok júlí í fyrra. Hlutur Lífeyrissjóðs verslunarmanna, þriðja stærsta hluthafa HB Granda, var 13,2 prósent í lok janúar en sjóðurinn hefur á undanförnum sex mánuðum selt um hálfs prósents hlut í útgerðinni. Þar á eftir kemur Gildi lífeyrissjóður með 8,5 prósenta hlut en hann hefur minnkað hlut sinn lítillega á síðustu mánuðum. Það sama gildir um Birtu lífeyrissjóð sem á liðlega 3,9 prósent í útgerðarfélaginu. Hlutabréfasjóður í stýringu Stefnis, Stefnir ÍS 15, hefur selt um 0,7 prósenta hlut í HB Granda á undanförnum mánuðum og hélt í lok síðasta mánaðar á tæplega 2,9 prósenta hlut í félaginu. Útgerðarfélag Reykjavíkur er sem fyrr stærsti hluthafi HB Granda með 35 prósenta hlut. Hlutabréf í útgerðinni hafa lækkað um 9,6 prósent í verði á síðustu sex mánuðum og stóð gengi bréfanna í 29,85 krónum á hlut við lokun markaða í gær. Var markaðsvirði félagsins þá um 54,1 milljarður króna.
Birtist í Fréttablaðinu Lífeyrissjóðir Sjávarútvegur Tengdar fréttir Brim og Grandi undan smásjá Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til að aðhafast neitt frekar í athugun sinni á því að breyting hafi átt sér stað á yfirráðum í HB Granda. 20. desember 2018 08:00 Með tögl og hagldir í íslenskum sjávarútvegi Álitsgjafar Markaðarins segja að með kaupum á ríflega þriðjungshlut í HB Granda hafi Guðmundur Kristjánsson, viðskiptamaður ársins, komið sér í lykilstöðu í einu öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Kapallinn hafi gengið upp. 28. desember 2018 08:30 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Brim og Grandi undan smásjá Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til að aðhafast neitt frekar í athugun sinni á því að breyting hafi átt sér stað á yfirráðum í HB Granda. 20. desember 2018 08:00
Með tögl og hagldir í íslenskum sjávarútvegi Álitsgjafar Markaðarins segja að með kaupum á ríflega þriðjungshlut í HB Granda hafi Guðmundur Kristjánsson, viðskiptamaður ársins, komið sér í lykilstöðu í einu öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Kapallinn hafi gengið upp. 28. desember 2018 08:30