Hollenskt útboð tollkvóta til hagsbóta fyrir neytendur Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. febrúar 2019 07:00 Óli Björn Kárason, formaður starfshópsins. Fréttablaðið/Ernir
Meirihluti starfshóps um úthlutun tollkvóta leggur til að tollkvótum í landbúnaði verði úthlutað með útboði. Stuðst verði við svokallað „hollenskt útboð“. Aðferðin myndi að öllum líkindum hafa í för með sér að útboðsverð verði lægra en verið hefur og ætti það að skila sér í lægra verði til neytenda. Árið 2015 undirrituðu Ísland og Evrópusambandið þrjá samninga um viðbótarfríðindi með landbúnaðarvörur. Samningarnir tóku gildi í maí í fyrra en þeir verða innleiddir í þrepum til ársins 2021. Hlutverk starfshópsins, sem skipaður var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var að finna leiðir til að koma ávinningnum af þeim takmörkuðu gæðum, sem aukning tollkvótanna er, í vasa neytenda. Í skýrslunni segir að almenningur myndi njóta mests efnahagslegs ávinnings ef tollkvótunum yrði úthlutað beint til landsmanna í formi hlutdeildarskírteinis. Það er hver og einn einstaklingur, yfir tilteknum aldri, fengi slíkan kvóta í sinn hlut sem hann gæti síðan framselt á markaði. Það fyrirkomulag væri þó háð ýmsum göllum enda ekki víst að allir myndu nýta sinn kvóta.Hollenska leiðin. Í boði eru átta kílógrömm og eru fjórir aðilar sem bítast um þau. A og D sækjast eftir 5 kg, B eftir 3 kg og C eftir einu. Áttunda hæsta tilboðið hljóðar upp á 20 kr. og ræður það verðinu til allra. D fær ekkert.„Hlutdeildarskírteini væru auðvitað skilvirkasta leiðin til að koma ágóðanum af auknum tollkvótum beint til neytenda. Helstu gallarnir eru að það kemur ekki mikið í hlut hvers og eins og því skortir hvata til að innleysa hann. En við töldum rétt að minnast á þessa hugmynd,“ segir Óli Björn Kárason, formaður hópsins. Sökum þessa lagði meirihluti hópsins, fjórir fulltrúar af fimm, til að hollenska leiðin væri farin. Útboðið á kvótunum færi rafrænt fram á sérstakri síðu og hefðu áhugasamir tvær vikur til að skrá sig. Verði heildartilboð jöfn eða lægri en magn í boði fá allir þátttakendur það sem eftir var sóst. Lægsta tilboð ræður verði allra. „Það er alveg ljóst að þessar tillögur fela í sér töluvert tekjutap fyrir ríkissjóð enda má ekki líta á tollkvóta ESB sem sérstakan tekjustofn fyrir ríkið. Tilgangur þeirra er að tryggja að landbúnaðarafurðir komist hingað til lands með sem minnstum kostnaði fyrir neytendur. Hollenska leiðin tryggir það,“ segir Óli Björn. Brynhildur Pétursdóttir, fulltrúi Neytendasamtakanna, skilaði séráliti og taldi heppilegast að varpa hlutkesti um helming kvótanna en úthluta helmingi á grundvelli reynslu. „Næsta skref er að vinna áfram með þessar niðurstöður hér í ráðuneytinu og vonandi kynna mögulegar breytingar á núgildandi regluverki síðar á þessu ári,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Birtist í Fréttablaðinu Neytendur Tengdar fréttir Segja ráðherra skerða kjötkvóta „Félag atvinnurekenda mótmælir þessum áformum ráðuneytisins harðlega,“ segir í bréfi félagsins til Kristjáns Þórs Júlíussonar landbúnaðarráðherra vegna áforma ráðherrans um að „skerða einhliða tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir kjöt“. 8. maí 2018 06:00 Innlendir framleiðendur með 41% af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjöt Innlendir kjúklinga- og svínabændur og afurðastöðvar í landbúnaði fengu samtals í sinn hlut rúmlega 41 prósent af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjötvörur, sem úthlutað var fyrir fyrri helming ársins 2019 samkvæmt tollasamningi Íslands og ESB. Bændur og afurðastöðvar flytja inn nærri 84 prósent af öllum svínakjötskvótanum. 15. janúar 2019 21:45 Segir fráleit vinnubrögð kosta þjóðina 104 tonn af gæðaostum Félag atvinnurekenda átelur vinnubrögð atvinnuvegaráðuneytisins vegna innleiðingu á tollasamningi við ESB 4. apríl 2018 15:00 Mest lesið Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Viðskipti innlent Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira
Segja ráðherra skerða kjötkvóta „Félag atvinnurekenda mótmælir þessum áformum ráðuneytisins harðlega,“ segir í bréfi félagsins til Kristjáns Þórs Júlíussonar landbúnaðarráðherra vegna áforma ráðherrans um að „skerða einhliða tollfrjálsa innflutningskvóta fyrir kjöt“. 8. maí 2018 06:00
Innlendir framleiðendur með 41% af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjöt Innlendir kjúklinga- og svínabændur og afurðastöðvar í landbúnaði fengu samtals í sinn hlut rúmlega 41 prósent af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjötvörur, sem úthlutað var fyrir fyrri helming ársins 2019 samkvæmt tollasamningi Íslands og ESB. Bændur og afurðastöðvar flytja inn nærri 84 prósent af öllum svínakjötskvótanum. 15. janúar 2019 21:45
Segir fráleit vinnubrögð kosta þjóðina 104 tonn af gæðaostum Félag atvinnurekenda átelur vinnubrögð atvinnuvegaráðuneytisins vegna innleiðingu á tollasamningi við ESB 4. apríl 2018 15:00
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent