Katrín segir Kvenréttindafélagið og Samtökin ´78 óháð samtök Jakob Bjarnar skrifar 8. febrúar 2019 11:05 María Helga Guðmundsdóttir (t.v.) er formaður Samtakanna '78 og Fríða Rós Valdimarsdóttir (t.h.) er formaður stjórnar Kvenréttindafélagsins. Katrín segir markmið beggja samninga það að fela óháðum félagasamtökum, sem vinna gegn hvers kyns mismunun, verkefni er varða fræðslu, ráðgjöf og þjónustu við skjólstæðinga þeirra.
Ríkisstjórnin virðist ekki gera sérstakan greinarmun á áróðri og fræðslu þegar svo ber undir. Eða, engin leið er að skilja svör forsætisráðherra á annan veg. „Markmið beggja samninga er að fela óháðum félagasamtökum, sem vinna gegn hvers kyns mismunun, verkefni er varða fræðslu, ráðgjöf og þjónustu við skjólstæðinga þeirra.“ Þetta segir í skriflegu svari sem Rósa Guðrún Erlingsdóttir sendi fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Vísis. Á undanförnum dögum hefur forsætisráðuneytið undirritað þjónustusamninga við tvö hagsmunasamtök:Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, „hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi“, eins og segir í tilkynningu ráðuneytisins, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Og, ráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa gert með sér samning um að félagið sinni fræðslu, námskeiðshaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi.Hin óháðu baráttusamtök Í svari við spurningum Vísis segir að samningar „regnhlífarsamtaka íslensku kvennahreyfingarinnar, Kvenréttindafélags Íslands annars vegar og hins vegar Samtakanna ´78, hagsmuna og baráttusamtaka hinsegin fólks við stjórnvöld, sem hafa mörg undanfarin ár verið gerðir við velferðarráðuneytið eru nú gerðir við forsætisráðuneytið í kjölfar þess að stjórnarmálefnið jafnréttismál var flutt milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands með forsetaúrskurði í desember sl.“Frá síðasta Kvennafrídeginum en samningar við Kvenréttindafélag Íslands um fræðslustarf grundvallast á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.visir/vilhelmBæði Kvenréttindafélagið og Samtökin ´78 eru yfirlýst hagsmuna- og baráttusamtök; þannig skilgreina þau sig sjálf og berjast fyrir tilteknum málstað. Því er spurt: Á hvaða forsendum eru þessi samtök styrkt og þeim falið að annast fræðslu á þessum tilteknu málefnum?Eins og áður segir þá er, að sögn Katrínar, markmið beggja samninga er að „fela óháðum félagasamtökum, sem vinna gegn hvers kyns mismunun, verkefni er varða fræðslu, ráðgjöf og þjónustu við skjólstæðinga þeirra.“Um greinarmun á fræðslu og innrætingu Víst er að þessi tilteknu samtök hafa til að bera sérþekkingu á þeim málefnum sem þau hafa látið til sín taka. En, slíkt er eðli samtaka af þessu tagi. Er gerður greinarmunur á eðli samtaka af hálfu forsætisráðuneytisins; þau þá metin þóknanleg eða ekki að teknu tilliti til þess málstaðar þau berjast fyrir áður en tekin er ákvörðun um hvort þeim eru falin verkefni á sviði menntunar og fræðslu á vegum hins opinbera? Eða er um almennar leikreglur að ræða? Væri til dæmis hugsanlegt að forsætisráðuneytið tæki upp samning við Heimdall um að fræða fólk um frjálshyggju innan menntakerfisins? Í svari Katrínar er ekki tekin afstaða til þessarar spurningar sérstaklega eða með beinum hætti: „Samningarnir eru gerðir í samræmi við markmið laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og laga nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði þar sem m.a. kveðið er á um að efla skuli fræðslu um jafnréttismál og vinna að jöfnum áhrifum einstaklinga í samfélaginu.“Ríkisstjórnin fagnar eins árs afmæli. Katrín vísar til stefnuyfirlýsingar vegna spurninga um hvort varasamt geti ekki reynst að blanda fræðslu og innrætingu saman,.fbl/BrinkEn, er enginn sérstakur greinarmunur gerður á fræðslu og svo innrætingu/áróðri þegar svo ber undir? Á sínum tíma var prestum úthýst úr skólum á nákvæmlega þeim forsendum. Verða þeir þó að heita sérfróðir um kristin fræði. Getur ekki einmitt reynst varasamt að blanda þessu saman? Er ekki verið að gefa hér fordæmi fyrir því að sá háttur verði hafður á framvegis, og það taki þá mið af því hvað ríkjandi stjórnvöld hvers tíma þykir ákjósanlegt að „fræða“ um?Rík áhersla ríkisstjórnarinnar á jafnréttismál Katrín vísar í svari sínu til sérstakra samninga við Kvenréttindafélag Íslands, þar sem kveðið er á um að félagið „skuli standa að námskeiðum fyrir konur, þar á meðal konur af erlendum uppruna, um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og einnig um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, með það að markmiði að auka þátttöku allra kvenna í umræðu og starfi á opinberum vettvangi. Er hér vísað til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda skv. alþjóðasamningi um afnám allrar mismununar gagnvart konum frá 1979 og framkvæmdaáætlunarinnar frá Peking frá 1995 sem leggur grunn að starfi aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna á sviði jafnréttismála og kveða m.a. á um að aðildarríki skuli styðja við og eiga samráð við félagasamtök sem vinna að mannréttindafræðslu og miða að því að fólk fái notið réttinda sinna.“ Að endingu segir í svari Katrínar að ríkisstjórnin leggi í stefnuyfirlýsingu sinni ríka áherslu á jafnréttismál. „Og þar kemur jafnframt fram það markmið hennar að Ísland verði í fremstu röð hvað varðar málefni hinsegin fólks, m.a. þannig að stuðningur við samtökin verði sambærilegur því sem tíðkast gagnvart systursamtökum þeirra á hinum Norðurlöndunum.“ Óhætt er að segja að ágætlega hafi tekist til í þeim efnum en niðurstöður launagreiningar varðandi kynbundinn launamun í sjálfu forsætisráðuneytinu leiðir í ljós að konur þar eru með 4,3 prósentum hærri laun en karlar. Þetta kom fram í nýlegu svari forsætisráðherra við fyrirspurn Þorsteins Víglundssonar um jafnlaunavottun stjórnarráðsins.
Jafnréttismál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Samtökin ´78 fá 15 milljónir til að sinna fræðslu Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. 7. febrúar 2019 13:25 Kvenréttindafélag Íslands fær 10 milljóna styrk frá ríkinu Forsætisráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa gert með sér samning um að félagið sinni fræðslu, námskeiðshaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi. 6. febrúar 2019 14:42 Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Sjá meira
Samtökin ´78 fá 15 milljónir til að sinna fræðslu Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. 7. febrúar 2019 13:25
Kvenréttindafélag Íslands fær 10 milljóna styrk frá ríkinu Forsætisráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa gert með sér samning um að félagið sinni fræðslu, námskeiðshaldi og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi. 6. febrúar 2019 14:42