„Áður en öndin talar eða gengur þá verður að finna öndina“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. janúar 2019 13:34 Kjartan Jónsson er sakaður um að hafa lekið innherjaupplýsingum Icelandair í vin sinn. Vísir/Vilhelm
Jónas Friðrik Jónsson, verjandi Kjartans Jónssonar, segir að ákæruvaldinu hafi mistekist að renna stoðum undir nokkur lykilatriði, sem þyrftu að vera til staðar svo að hægt sé að sakfella skjólstæðing sinn. Kjartani er gefið að sök að hafa lekið innherjaupplýsingum úr Icelandair Group í æskuvin sinn, Kristján Georg Jósteinsson, sem hann gat síðan nýtt sér til að hagnast á hlutabréfamarkaði. Aðalmeðferð í innherjasvikamáli Icelandair var framhaldið í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi, en dagurinn hófst á málflutningi saksóknarans sem fer fram á 2 til 2 og hálfs árs fangelsi yfir Kjartani. Jónas er þó eðli máls samkvæmt á öðru máli og fór fram á að Kjartan yrði sýknaður af öllum ákæruliðum. Kröfu sína byggði hann á því sem hann sagði vera gloppur í málflutningi ákæruvaldsins. Varði hann töluverðum tíma í að útskýra fyrir viðstöddum þær forsendur sem þyrftu að vera til staðar, svo hægt væri að sakfella í máli sem þessu. Til að mynda þyrfti að byrja á því að sýna fram á að innherjaupplýsingar hafi yfirhöfuð verið til staðar, það þyrfti að tilgreina með nákvæmum hætti hverjar þær voru og hvernig þær urðu til. Auk þess þyrfti að sanna að hinn ákærði hefði búið yfir þessum upplýsingum og að afhending á þeim til þriðja aðila hefði raunverulega átt sér stað. Auk þess þyrftu upplýsingarnar að vera nákvæmar, ekki opinberar og taldar líklegar til að hafa áhrif á markaðsverð. Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari sækir málið gegn Kjartani, Kristjáni Georgi og Kjartani Bergi.Vísir/Vilhelm Í stuttu máli taldi Jónas að ákæruvaldinu hefði mistekist að sýna með óyggjandi hætti fram á þessa þætti. Þar að auki lægi ekki fyrir hvað Kjartan á að hafa grætt mikið á meintum innherjabrotum. Ekki þýddi að reiða sig á þær „óbeinu sannanir“ sem saksóknara var tíðrætt um í máli sínu í morgun. Staðfestingar þyrftu að liggja fyrir. „Áður en öndin talar eða gengur þá verður að finna öndina,“ sagði Jónas, og vísaði þar beint til líkingar saksóknara í morgun. Þannig þýddi ekki fyrir saksóknara að mati Jónasar að vísa í einstaka tölvupósta og „kryptískar setningar.“ Hóf Jónas þá að hrekja ýmsa þá tölvupósta sem ákæruvaldið hafði varpað upp og sagði ekkert í þeim póstum mætti flokka sem innherjaupplýsingar. „Þessir tölvupóstar einir og sér eru ekki að sýna eitt eða neitt,“ eins og Jónas komst að orði. Því væri algjörlega ósannað að afhending á innherjaupplýsingum hafi átt sér stað í þessum máli – þrátt fyrir einstaka, óútskýrðar fullyrðingar um að væntanleg uppgjör verði góð. Þá efaðist Jónas um það að Kjartan Jónsson gæti, samkvæmt skilgreiningu, talist fruminnherji – sem verði „að jafnaði“ að hafa aðgang að innherjaupplýsingum. Alls væru 72 einstaklingar flokkaðir sem innherjar hjá Icelandair og taldi Jónas liggja í augum uppi að allt þetta fólk hefði ekki aðgang, að jafnaði, að öllum mikilvægum gögnum um rekstur félagsins sem gætu haft áhrif á gengi þess í Kauphöllinni. Kjartan Jónsson hafði sem fruminnherji aðgang að lykilupplýsingum hjá Icelandair Group.Vísir/Vilhelm Að sama skapi gaf Jónas lítið fyrir þau símtalayfirlit sem saksóknari hafði varpað upp og sýndu fram á regluleg símtöl milli þeirra Kristjáns Georgs og Kjartans á tímabilinu – jafnvel í kringum væntanlega uppgjör. „Það að vinir til áratuga tali reglulega saman í síma sýnir ekki fram á afhendingu innherjaupplýsingar,“ sagði Jónas. „Lengd eða dagsetning símtalanna sannar það ekki heldur,“ þó svo að ákæruvaldið hafi reynt að halda öðru fram. Ekki hafi þannig verið sýnt fram á að afhending á innherjaupplýsingum hafi raunverulega átt sér stað. Þá þótti Jónasi varhugavert að ekkert hafi verið fjallað um Icelandair Group eða starfsemi hans í máli ákæruvaldsins. Icelandair Group sé stórfyrirtæki, sem samanstendur af níu viðskiptaeiningum. Því hafi fjölmargir rekstrar- og áhættuþættir áhrif á gengi félagsins; eins og olíuverð, gengi krónunnar, átök á vinnumarkaði og svo framvegis. Því væri fulllangt seilst að telja að tölur um farþegaflutninga, sem Kjartan bjó yfir, gætu einar og sér haft þau gríðarlegu áhrif á gengi hlutabréfa í Icelandair eins og ákæruvaldið lét í veðri vaka. Jónas vildi að sama skapi ekki gefa of mikið úr þessum farþegatölum. Taflan, sem Kjartan hafði áframsent á samstarfsmenn sína, tæki alla jafna miklum breytingum enda væru tölurnar sem hún byggði á mikill hreyfingu. Samstarfsmaður hans hafi þannig staðfest í vitnaleiðslu í gær að það þyrfti að vinna nánar úr töflunni áður en áhrif hennar á tekjuspá félagsins myndu liggja fyrir. Þar að auki ætti ekki að lesa of mikið í þann gjaldeyri sem fannst við húsleit á heimili Kjartans. Hreyfingar á bankareikningum hans styddu jafnframt skýringar Kjartans um að hann hafi sjálfur tekið út þann gjaldeyrinn í tengslum við utanlandsferðir sem hann fór í. Næstur tekur Reimar Snæfells Pétursson, verjandi Kristjáns Georgs, til máls.
Dómsmál Icelandair Innherjasvik hjá Icelandair Tengdar fréttir Innherjasvik í Icelandair: Segist vakna á morgnana og bíða eftir að dagurinn klárist Gunnar Nelson, milljónir í bókahillu, íslenskumenntun og afmælisdagur á nærbuxunum er meðal þess sem bar á góma við aðalmeðferðina í Icelandair-innherjasvikamálinu svokallaða. 23. janúar 2019 13:30 Innherjasvik í Icelandair: Fimm milljóna lán í reiðufé til að koma Matstöðinni á koppinn Matthías Sveinbjörnsson, forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair, segist hafa haft upplýsingar frá Kjartani Jónssyni til hliðsjónar þegar hann gerði tekjuspár fyrir Icelandair. 23. janúar 2019 15:49 Innherjasvik í Icelandair: „Ef það lítur út eins og önd...“ Að sögn saksóknara byggði sönnunarfærsla í svona málum því oftar en ekki á óbeinni sönnun, sem telst þó fullgild sönnun samkvæmt íslenskum lögum. Ef það lítur út eins og önd, labbar eins og önd og kvakar eins og önd – þá er það líklega önd, eins og Finnur komst að orði. 24. janúar 2019 11:32 Mest lesið Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Neytendur Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Viðskipti innlent Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Viðskipti innlent Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Viðskipti innlent Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Viðskipti innlent 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Sjá meira
Innherjasvik í Icelandair: Segist vakna á morgnana og bíða eftir að dagurinn klárist Gunnar Nelson, milljónir í bókahillu, íslenskumenntun og afmælisdagur á nærbuxunum er meðal þess sem bar á góma við aðalmeðferðina í Icelandair-innherjasvikamálinu svokallaða. 23. janúar 2019 13:30
Innherjasvik í Icelandair: Fimm milljóna lán í reiðufé til að koma Matstöðinni á koppinn Matthías Sveinbjörnsson, forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair, segist hafa haft upplýsingar frá Kjartani Jónssyni til hliðsjónar þegar hann gerði tekjuspár fyrir Icelandair. 23. janúar 2019 15:49
Innherjasvik í Icelandair: „Ef það lítur út eins og önd...“ Að sögn saksóknara byggði sönnunarfærsla í svona málum því oftar en ekki á óbeinni sönnun, sem telst þó fullgild sönnun samkvæmt íslenskum lögum. Ef það lítur út eins og önd, labbar eins og önd og kvakar eins og önd – þá er það líklega önd, eins og Finnur komst að orði. 24. janúar 2019 11:32