Snjókoma á höfuðborgarsvæðinu og herðir frost Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. desember 2018 07:21 Ekki er þó búist við að snjórinn staldri lengi við í borginni. Vísir/vilhelm
Áfram mun snjóa á Norðurlandi í dag líkt og síðustu daga. Útlit er fyrir talsvert frost á landinu á morgun og annað kvöld stefnir víða í snjókomu, m.a. á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Í dag verða élin norðantil á landinu „með þéttara laginu“ í kringum Tröllaskaga, frá Skagafirði austur á Skjálfanda. „En seint í kvöld og á morgun dregur úr ákefðinni. Á sama tíma fer veður kólnandi og er útlit fyrir talsvert frost um allt land á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Annað kvöld stefnir svo í snjókomu um landið vestanvert, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Ekki lítur þó út fyrir að snjórinn staldri lengi við þar eð spár gera ráð fyrir hlýnandi veðri og rigningu sunnanlands þegar líður á vikuna. Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á mánudag:Norðlæg átt 8-13 m/s A-ast, annars mun hægari. Él fyrir norðan, en þurrt sunnan heiða. Suðaustan 5-13 og snjókoma V-til á landinu undir kvöld. Frost 2 til 8 stig, en kaldara inn til landsins og herðir á frosti um kvöldið.Á þriðjudag:Vestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og snjókoma eða él, einkum um V-vert landið fyrripartinn. Áfram kalt í veðri.Á miðvikudag:Hæg breytileg átt, léttskýjað og talsvert frost. Vaxandi suðaustanátt S-til undir kvöld, væta með ströndinni og hlýnar heldur.Á fimmtudag:Gengur í stífa austlæga átt og hlýnar með rigningu um S-vert landið, en þurrt fyrir norðan og hiti um og undir frostmarki þar.Á föstudag:Breytileg átt með dálítilli rigningu eða snjókomu á víð og dreif. Frost um mest allt land, en upp í 5 stiga hita með S- og V-ströndinni.Á laugardag:Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt og lengst af þurrt veður.
Veður Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira