Um 300 einstaklingar, sem ýmist eru núverandi eða fyrrverandi starfsmenn Ted Baker, rituðu nafn sitt við kvörtun þar sem fyrrnefndum stofnanda var gefið að sök að hafa hagað sér með ósæmilegum hætti í þeirra garð. Er Ray Kelvin meðal annars sagður hafa kysst eyru þeirra, nuddað axlir, farið fram á að þeir settust í kjöltu hans og faðmað þá án samþykkis. Auk þess er stofnandinn sagður hafa látið margvísleg kynferðisleg og óþægilega tvíræð ummæli falla um starfsmenn sína.
Í yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér vegna málsins, og reifuð er á vef The Guardian, segir að stjórn þess, sem og Kelvin sjálfur, hafi ætíð stært sig af því að Ted Baker sé góður vinnustaður. Af þeim sökum líti fyrirtækið þessar ásakanir alvarlegum augum og að boðað hafi verið til óháðrar rannsóknar. Niðurstöður hennar verði svo notaðar til að ákvarða næstu skref.
Haft er eftir einum fyrrverandi starfsmenn Ted Baker, sem sagði upp fyrr á þessu ári, að stofnandinn hafi reglulega faðmað sig án þess að fá til þess samþykki. Þar að auki á hann að hafa nuddað axlir starfsmannsins í fjölmargra vitna viðurvist í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Honum hafi þótt það lítillækkandi.

Kelvin, sem stofnaði Ted Baker árið 1988, hefur ekki viljað tjá sig um þessa ásakanir en haft var eftir honum í viðtali sem tekið var síðastliðið sumar að hann hafi aldrei neytt starfsmenn til að setjast í kjöltu hans. Hann segir marga hafa tyllt sér í kjöltu föður hans á sínum tíma enda hafi það hreinlega þótti vinalegt á uppvaxtarárum sínum. Faðmlög og önnur heilbrigð nánd hafi lengi verið lykilþáttur í vinnustaðamenningu Ted Baker.
Kelvin segir að sama skapi ekki hægt að gera þá kröfu að hann umbylti tilveru sinni á einni nóttu þó svo að fólk sé farið að líta ákveðna hegðun, sem hafi kannski lengi þótt í lagi, öðrum augum en áður.
Fregnirnar af rannsóknarnefndinni eru sagðar bera meginábyrgðina á hruni hlutabréfaverðs í Ted Baker. Við opnun kauphallarinnar í Lundúnum í gær féllu bréfin um næstum 13 prósent. Ted Baker rekur alls um 490 verslanir um allan heim og hefur heildarvelta fyrirtækisins verið næstum 100 milljarðar íslenskra króna á þessu ári.