En fyrir neytendur getur munað mörg þúsund krónum að gera einmitt það. Blaðið kannaði verð á átta vinsælum titlum af metsölulista Eymundsson í fjórum verslunum í gær. Hafa ber í huga að á þessum árstíma geta verið sveiflur á verðlagningu. Ýmis tilboð og annað sífellt í gangi svo enn getur verð lækkað þegar nær dregur jólum. Sem dæmi var 25 prósent afsláttur af öllum vörum í Pennanum/Eymundsson í Hallarmúla í gær.
Ein dýrasta bókin er bók Þórðar Snæs Júlíussonar, Kaupthinking. Hún er dýrust í verslun Pennans/ Eymundsson á 7.499 krónur en ódýrust í Bónus á 4.798 krónur. Verðmunurinn 56 prósent. Raunar munar líka rúmlega 20 prósentum á bókinni í Bónus og þar sem hún er næstódýrust, í Hagkaupum, á 5.799 krónur.
Hvergi er meiri munur milli verslana en á bókum Yrsu og nýju Útkallsbókinni. Rúm 59 prósent. Sem dæmi um hversu mikið má spara við kaup á jólabókum má nefna að ef viðskiptavinur kaupir bækur Arnaldar og Yrsu og barnabók Ævars vísindamanns greiðir hann 12.194 krónur í Bónus.
Fyrir sömu bækur greiðir hann 18.997 krónur í Pennanum/Eymundsson og 15.397 krónur í Hagkaupum, sem oftast var með næstlægsta verðið. Í könnun blaðsins í fyrra var mesti verðmunur milli verslana 52 prósent.
Í könnuninni í ár er Costco fjarri góðu gamni. Í fyrra var meirihluti titlanna ekki til í versluninni en þá spilar inn í að blaðamaður endurnýjaði ekki aðild sína að versluninni.
