Grunuð um að hafa reynt að drepa tengdason sinn og afmá verksummerki Birgir Olgeirsson skrifar 22. nóvember 2018 16:34 Frá Akranesi FBL/GVA
Kona á Akranesi er grunuð um tilraun til manndráps með því að hafa stungið tengdason sinn með hnífi aðfaranótt 10. nóvember síðastliðinn. Konan var handtekin á vettvangi en Héraðsdómur Vesturlands úrskurðaði hana í gæsluvarðhald til föstudagsins 14. desember. Hefur Landsréttur staðfest úrskurðinn.Í greinargerð lögreglustjórans á Vesturlandi, sem lesa má í úrskurðinumi, kemur fram að konan átti að gæta barnabarns síns, sem er dóttir mannsins sem varð fyrir manndrápstilrauninni. Atburðarásin er sögð hafa hafist vegna ölvunar konunnar sem er sökuð um að hafa stungið karlinn í brjóstkassa. Hún er einnig grunuð um að hafa reynt að hindra honum för af vettvangi með því að stinga á hjólbarða og talin hafa reynt að hreinsa vettvanginn af sönnunargögnum. Einnig er talið að hún hafi reynt að fela síma karlsins og spjaldtölvu. Karlinn gaf skýrslu hjá lögreglu en þar sagði hann konuna hafa drukkið áfengi á meðan hún gætti barns hans. Hringt hafði verið í lögregluna því að stúlkan hafði hringt í föður sinn og kvartað yfir ölvun ömmu sinnar.Vaknaði við öskur konunnar Karlinn sagði konuna hafa sakað sig um að hafa hringt í lögregluna og kvartað undan ölvun hennar. Hún sofnaði að lokum í sófanum í stofunni. Maðurinn sagðist hafa farið að sofa um klukkan tíu sama kvöld og þá hafi barnið verið sofnað. Hann vaknaði svo við það að konan var komin inn í herbergið og búin að kveikja ljós. Hún hafi öskrað að lögregluheimsóknin fyrr um kvöldið hefði verið honum að kenna. Karlinn sagðist hafa gengið að henni og ætlað að færa hana út úr herberginu en þá fundið stungu og honum hafi byrjað að blæða. Konan hafi þá gengið í burtu.Talin hafa fjarlægt síma á meðan hann var sofandi Karlinn sagðist þá hafa ætlað að hringja í sambýliskonu sína en ekki fundið símann sinn. Hann hefði farið inn í stofuna og hringt úr heimasímanum í farsímann. Þá hefði hann fundið farsímann og spjaldtölvuna sína undir sófanum í stofunni. Rannsókn lögreglu á símtölum í og úr farsíma mannsins styðja framburð hans. Tengdasonurinn fullyrðir að á meðan hann var sofandi hafi konan fjarlægt bæði símann og spjaldtölvuna úr svefnherberginu þar sem hann svaf. Hann sagðist hafa hringt í sambýliskonu sína, en á meðan hafi kærða ógnað sér með svörtum hnífi og öskrað á honum að þetta væri allt honum að kenna. Hann segir sambýliskonu sína hafa hringt í konuna, sem er móðir sambýliskonunnar, en hann hafi sjálfur farið í svefnherbergið og lokað sig af. Sambýliskonan lét síðan hringja eftir lögregluaðstoð.Stungið á hjólbarða Fyrir liggur að stungið var á tvo hjólbarða bíls karlsins, en bíllin stóð fyrir utan húsið. Liggur tengdamóðirin sterklega undir grun. Karlinn gekkst undir aðgerð á sjúkrahúsi. Hann var ekki talinn í lífshættu þó atlagan hafi verið hættuleg. Hann hafði verið stunginn með hníf í brjóstkassann og hnífurinn hafi stungist allt að 15 til 20 sentímetra inn í líkama hans. Sambýliskona mannsins gaf skýrslu hjá lögreglu þar sem hún staðfesti frásögn mannsins.Grunuð um að reyna koma sönnunargögnum undan Konan hefur tvisvar gefið skýrslu hjá lögreglu þar sem hún neitar sök en frásögn hennar er þó að mati lögreglustjórans á Vesturlandi óljós og mjög ófullkomin, auk þess sem framburður hennar stangast verulega á við annað sem fram hefur komið við rannsókn málsins. Lögreglustjórinn segir sterkan grun um að konan hafi ætlað sér að hindra manninn í að komast af vettvangi. Ógnandi hegðun hennar hafi orðið til þess að hann hafi lokað sig af inni í herbergi. Hnífstungnir hjólbarðar hafi komið í veg fyrir að bíllinn væri notaður. Einnig sé sterkur grunur um að konan hafi verið byrjuð að hreinsa vettvanginn eða koma sönnunargögnum undan en í bifreiðinni fyrir utan húsið hafi fundist hnífur og blóðug föt. Var það mat lögreglustjórans að það myndi særa réttarvitund almennings ef konan yrði látin laus og því með tilliti til almannahagsmuna ekki forsvaranlegt að hún gengi laus. Í bréfi læknis kemur fram að hnífurinn hafi runnið á rifjum fram hjá brjóstkassanum. Hafi árásin verið lífshættuleg og einungis heppni að hnífurinn hafi gengið niður á rif og runnið eftir rifjunum utan við brjóstholið. Hefði hann auðveldlega geta farið á milli rifja og inn í brjósthol og þá með mun alvarlegri afleiðingum.
Lögreglumál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira