Skoðun

Hvað þarf eiginlega marga þætti með Helga Seljan?

Þórir Garðarsson skrifar
Ríkisvaldið er ótrúlega slappt þegar kemur að því að framfylgja lögum og reglum sem snúa að útlendingum og erlendum fyrirtækjum hér á landi. Það sýndi sig vel í Kveiks-þætti Helga Seljan og félaga hans hvernig brotið er á erlendum starfsmönnum hér á landi. Lögin eru til og þau eru skýr, en ríkisvaldið fylgir þeim ekki eftir. Sérstaklega virðist ríkisskattstjóri draga lappirnar, eins og fram kom í þættinum.

Þegar kemur að ferðaþjónustunni snýst dæmið við, þá er verið að glíma við útlendinga sem brjóta lögin. Hér starfar fjöldi óskráðra erlendra fyrirtækja sem komast upp með að skila ekki sköttum eða greiða laun samkvæmt kjarasamningum. Með þennan sparnað að vopni hirða útlendu fyrirtækin bein og óbein viðskipti af íslenskum fyrirtækjum.

Lögunum er ekki fylgt eftir

Líkt og með erlendu starfsmennina sem Helgi Seljan fjallaði um, þá vantar ekki lagabálkana sem banna félagsleg undirboð og skattsvik erlendra fyrirtækja. En líkt og með erlenda starfsfólkið sem svínað er á, þá er þessum lögum illa eða ekkert fylgt eftir.

Ekki vantar upphlaup ráðherra, þingmanna og stofnanaforstjóra þegar fjölmiðlar benda á athafnaleysi þeirra. Enda rauk félagsmálaráðherra til eftir að hafa horft á Kveik og tilkynnti um nýjan starfshóp til að skerpa á viðurlögum við brotum á vinnumarkaði.

Ekkert gert með tillögur um aðgerðir

Fyrir tveimur árum tók ég þátt í samráðsfundi fjölmargra opinberra stofnana og aðila vinnumarkaðarins um ólöglega starfsemi erlendra fyrirtækja í ferðaþjónustu hér á landi. Allir voru sammála um að aðgerða væri þörf hið fyrsta. Fundinum lauk en svo gerðist ekkert frekar.

Fyrir einu ári, í fyrrasumar, lagði starfshópur á vegum efnahags- og fjármálaráðherra loksins fram ítarlegar tillögur um aðgerðir til að taka á útbreiðslu erlendrar brotastarfsemi í ferðaþjónustunni. 

Ekkert hefur verið gert með þær tillögur, nákvæmlega ekkert.

Ég hef ítrekað skrifað greinar um þetta ófremdarástand, enda heyri ég daglega af því hvernig erlendu fyrirtækin grafa undan íslenskri ferðaþjónustu. En það gerist ekkert.

Hvað er eiginlega að?

Hvað er eiginlega að í stjórnsýslunni? Við höfum skýr lög um réttindi og skyldur allra sem starfa hér á landi. Við höfum Vinnumálastofnun, Tollstjóra, Ríkisskattstjóra, Skattrannsóknarstjóra, Vinnueftirlit, lögreglu, ráðuneyti og dómstóla til að framfylgja lögunum og taka á þeim brotlegu. Hvernig stendur þá á því að lögleysan veður hér uppi árum saman? Hvernig stendur á því að tillögur um aðgerðir enda ofan í skúffu?

Værukærð stjórnsýslunnar virðist rétt aðeins rofna þegar harkaleg og réttmæt gagnrýni birtist í fjölmiðlum. Hvað þarf Helgi Seljan eiginlega að gera marga þætti þangað til einhver hreyfing verður í þessum efnum?

Þórir Garðarsson

Stjórnarformaður Gray Line og fyrrverandi varaformaður SAF




Skoðun

Sjá meira


×