Komu veikri konu og slösuðum skipverja undir læknishendur Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. september 2018 18:57 Konan og skipverjinn voru bæði flutt á sjúkrahús í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og TF-GNA, sinntu tveimur útköllum í dag. Í öðru útkallinu var kona á Norðvesturlandi flutt á sjúkrahús í Reykjavík og í hinu var slasaður skipverji sóttur um borð í togara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Klukkan 11:38 barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni frá Neyðarlínu um að flytja þyrfti konu á Norðvesturlandi á sjúkrahús í Reykjavík vegna bráðra veikinda. TF-LIF var komin í loftið um tuttugu mínútum síðar og flutti konuna á Landspítalann í Fossvogi. Á meðan TF-LIF sinnti útkallinu á Norðvesturlandi var óskað eftir aðstoð þyrlusveitarinnar vegna slasaðs skipverja um borð í togara sem staddur var um 70 sjómílur suðvestur af landinu. TF-GNA tók á loft frá Reykjavík klukkan 13:14 og var komin að skipinu um þremur korterum síðar. Maðurinn var hífður um borð í þyrluna og komið undir læknishendur í Reykjavík.
Landhelgisgæslan Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent Landið mest allt gult í dag Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Sjá meira