Óvænt tap City á heimavelli Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. september 2018 21:00 Sane labbar svekktur af velli vísir/getty Lærisveinar Pep Guardiola misstigu sig í fyrsta leik sínum í Meistaradeild Evrópu þetta tímabilið þegar liðið tapaði fyrir franska liðinu Lyon á heimavelli. Maxwel Cornet kom gestunum yfir í fyrri hálfleik eftir að Fabian Delph mistókst að hreinsa fyrirgjöf Nabil Fekir inn í teiginn. Fekir fann svo marknetið sjálfur áður en hálfleikurinn var úti þegar hann skoraði af um 25 metra færi. Staðan 0-2 í hálfleik á Etihad vellinum og City í vandræðum. Bernardo Silva lagaði stöðuna fyrir heimamenn eftir sendingu Leroy Sane í seinni hálfleik en City komst ekki nær og varð að sætta sig við 1-2 tap. City er því á botni F-riðils eftir fyrsta leikdag því Shakhtar Donetsk og Hoffenheim gerðu 2-2 jafntefli fyrr í dag. Meistaradeild Evrópu
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - ÍBV 26-32 | Eyjamenn virðast vera að toppa á réttum tíma Handbolti
Elfar Freyr tók rauða spjaldið af Þorvaldi eftir að hann var rekinn út af | Myndband Íslenski boltinn
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - ÍBV 26-32 | Eyjamenn virðast vera að toppa á réttum tíma Handbolti
Elfar Freyr tók rauða spjaldið af Þorvaldi eftir að hann var rekinn út af | Myndband Íslenski boltinn