Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í guðfræðilegri siðfræði, hefur einmitt skrifað áhugaverða grein, „Að fyrirgefa ekki – gildi gremjunnar fyrir einstaklinga og samfélög“, þar sem hún bendir annars vegar á að sumt sé einfaldlega ófyrirgefanlegt og að í kristninni sé það aðeins Guð sem geti mögulega fyrirgefið hið ófyrirgefanlega. Hin kristna sýn er sú að það sé bara sá sem valdið hefur sem getur fyrirgefið.
Það samrýmist því hvorki kristinni siðfræði né femínískri sýn á fyrirgefninguna að látið sé í veðri vaka að þolendur kynferðisofbeldis skuldi gerendum fyrirgefningu, eða nokkuð annað.
Því vakti það talsverða undrun og jafnvel gremju, sem er víst ekki mjög dömuleg tilfinning, að lesa greinina „Nauðgunarmenningin“ eftir Bjarna Karlsson, prest og MA í kynlífssiðfræði, sem birtist í Fréttablaðinu 30. ágúst. Greinin fer ágætlega af stað og fjallar um stöðu kvenna og valdaleysi í samfélaginu, í samhengi við yfirráð karla, og leiðist svo út í umfjöllun um #metoo-byltinguna. Bjarni skriplar þó heldur betur á skötunni þegar hann endar greinina á því að fordæma það að fjallað sé um kynferðisbrotamenn í fjölmiðlum og kallar eftir því að samfélagið kunni skil á „iðrun, yfirbót og fyrirgefningu“ og segir svo að samfélag manna muni „ekki dafna ef við kunnum ekki að endurreisa fólk.“
Það er ekki alveg ljóst af skrifum Bjarna hverjir það eru sem eiga að iðrast, sýna yfirbót og fyrirgefa en svo virðist sem að það séu jafnvel blaðamenn og aðrir sem halda umræðu um kynferðisofbeldi og gerendur þess á lofti. Þetta er vægast sagt furðulegt niðurlag greinar sem hefst á umræðu um hvað allt sé að opnast, nú megi ræða kynferðisbrot og skila skömminni, bæði konur og karlar. En hvað svo? Má ekki tala um gerendur þessa sama ofbeldis nema þeir séu af lægri stéttum? Eigum við að hafa jafnvel enn meira umburðarlyndi þegar kemur að fólki sem treyst hefur verið fyrir valdi og ábyrgð yfir öðru fólki af stofnunum samfélagsins?

Forréttindablinda
Það er ansi langt í að réttlætinu sé fullnægt gagnvart þolendum kynferðisofbeldis á Íslandi, og ótal gögn staðfesta það. Nægir þar að benda á tölfræði um sakfellingar í kynferðisbrotamálum, rannsóknir á forréttindablindu dómara, og annarra starfsmanna réttarkerfisins, og nýleg dæmi um sýknudóma sem ofbjóða réttlætistilfinningu þorra landsmanna.Ofbeldismenn axla alla jafna ekki ábyrgð á gjörðum sínum né játa sekt sína. Fátítt er að heyra um iðrun þeirra eða yfirbót. Aðeins eitt dæmi kemur t.d. upp í hugann um mann sem viðurkenndi að hafa nauðgað og þar sem slíkt er svo sjaldgæft vakti það heimsathygli.
Á meðan staða mála er þannig að það komist í heimsfréttir ef kynferðisbrotamaður axlar ábyrgð á gjörðum sínum ættum við alls ekki að vera að ræða um fyrirgefninguna í þessu samhengi og það er spurning hvað hún á almennt mikið erindi í umræðu um kynferðisofbeldi.
Til er saga um mann sem stolið var af og fékk upp frá því viðurnefnið þjófur. Yfirskrift Bjarna á grein sinni, „Nauðgunarmenningin“, kallar á nauðsyn þess að við beinum sjónum að þeim sem nauðga. Annars munum við búa við óbreytt ástand og þá var til lítils af stað farið með #MeToo.
Þegar fólk hefur brotið gegn ákveðnum siðferðislegum viðmiðum samfélagsins er hreinlega ekki aftur snúið, það á ekki aftur erindi inn á ákveðin svið og þarf að haga lífi sínu í takt við það. Það fer best á því að styðja fólk í því að skilja að gjörðir hafa afleiðingar og ekki bara lagalegar. Ákveðnar brýr hafa brotnað og verða ekki aftur færar einstaklingum sem gerst hafa sekir um „hið ófyrirgefanlega“.