Tveir nákvæmlega eins bikarúrslitaleikir í fyrsta sinn í sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2018 13:00 Sigríður Lára Garðarsdóttir og Sóley Guðmundsdóttir lyfta bikarnum í fyrra en bæði ÍBV liðin unnu bikarkeppni KSÍ í fyrra. vísir/ernir
Mjólkurbikarinn í ár er þegar orðinn sögulegur eftir að ljóst varð að nágrannar úr Kópavogi og Garðabæ mætast hjá bæði körlum og konum. Breiðablik og Stjarnan tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleik karla í vikunni og í kvöld mætast sömu félög í bikaúrslitaleik kvenna. Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld, hefst klukkan 19.15 og er einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport. Þetta er í fyrsta sinn síðan að bikarkeppni kvenna var tekin upp árið 1981 að sömu félög mætast í báðum úrslitaleikjunum. Breiðablik og Stjarnan eru fimmtánda og sextánda félagið sem ná báðum meistaraflokssliðum sínum í bikaúrslitaleikinn en það gerðist síðast í fyrra. ÍBV varð þá bikarmeistari hjá báðum kynjum en það hafði aðeins gerst fimm sinnum áður þar af bara einu sinni á árunum 2000 til 2016 (KR 2008). Hin félögin sem hafa eignast tvö bikarmeistaralið á sama ári eru Valur (1988 og 1990), ÍA (1993) og KR (1999 og 2008). Nú fá Blika- og Stjörnufólk tækifæri til að bætast í þann hóp. Bæði félög hafa áður verið með báða meistaraflokka í úrslitum, Blikar 2009 og Stjarnan 2012, en fengu þá eitt gull og eitt silfur.Félög með báða meistaraflokka í bikarúrslitum fótboltans: 1. ÍA 1983 (gull og silfur) 2. ÍA 1984 (gull og silfur)3. Valur 1988 (tvö gull)4. Valur 1990 (tvö gull)5. ÍA 1993 (tvö gull) 6. KR 1994 (gull og silfur) 7. KR 1995 (gull og silfur)8. KR 1999 (tvö gull)9. KR 2008 (tvö gull) 10. Breiðablik 2009 (gull og silfur) 11. KR 2011 (gull og silfur) 12. Stjarnan 2012 (gull og silfur) 13. ÍBV 2016 (tvö silfur)14. ÍBV 2017 (tvö gull) 15. Stjarnan 2018 (???) 16. Breiðablik 2018 (???)
Mjólkurbikarinn Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Enski boltinn Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Fótbolti NFL varar leikmenn deildarinnar við glæpahópum Sport Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Fótbolti Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Handbolti „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Körfubolti Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Handbolti Guardiola samdi til ársins 2027 Enski boltinn Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Fótbolti Framarar náðu toppliðunum að stigum Handbolti Fleiri fréttir Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina Sjá meira