Blaut helgi framundan Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. júlí 2018 06:58 Hver hefði trúað því að myndi rigna um helgina? Vísir/vilhelm
Íslendingar, sama hvar þeir eru niðurkomnir á landinu, mega búast við rigningu um helgina. Veðurstofan boðar vætusamt veður næstu daga, einkum vestantil á landinu, en austast eru líkur á síðdegisskúrum - að minnsta kosti á morgun, laugardag. Það mun hins vegar lægja og létta smám saman til í dag á austanverðu landinu og má víða búast við bjartviðri fram eftir kvöldi. Sömu sögu er þó ekki að segja sunnan- og vestantil, en þar þykknar upp fyrir hádegi og fer að rigna síðdegis eða í kvöld. Hiti verður á bilinu 8 til 18 stig, hlýjast austanlands. Þá hefur útlitið fyrir næstu viku lítið breyst, áfram má gera ráð fyrir suðvestanátt með skúrum á vestanverðu landinu á mánudag og þriðjudag en bjartviðri og hlýindum austantil. Veðurstofan segir að skýringarnar sé að finna í þrálátum hæðum yfir Skandinavíu og Bretlandeyjum, sem eigi sinn þátt í þessu veðurlagi. Að sama skapi hafa háloftastraumarnir verið okkur óhagstæðir.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Suðlæg átt 3-8 og skýjað með köflum og skúrir en léttskýjað og úrkomulítið á Austfjörðum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag:Hægt vaxandi suðvestanátt um suðvestan og vestanvert landið og fer að rigna seinnipartinn en bjartviðri austantil. Hlýnar heldur í veðri. Á mánudag og þriðjudag:Suðvestanátt, víða 5-13 m/s. Skýjað og skúrir S- og V-lands en lengst af bjartviðri um landið austanvert. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast NA-til. Á miðvikudag og fimmtudag:Útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt. Skýjað og smáskúrir um landið vestanvert en léttskýjað norðan og austantil. Hiti 8 til 17 stig. Svalast á annesjum vestanlands
Veður Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira