Yfir 200 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. júní 2018 12:41 Þó nokkuð margir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Norðurlandi um helgina. fréttablaðið/vilhelm
Alls voru 212 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur um helgina í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra annars vegar og umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra hins vegar. Þetta kemur fram í tilkynningum frá lögregluembættunum á Facebook. Bíladagar voru á Akureyri um helgina og var lögreglan því með meiri viðbúnað í bænum og næsta nágrenni en ella. Umferðarmálin voru fyrirferðarmest þar sem 78 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur en sá sem ók hraðast var á 135 km/klst. Tuttugu ökumenn voru svo sektaðir fyrir að vera með litaðar filmur í rúm og þó voru nokkrir ekki með ökuskírteinin með sér. Alls tíu umferðaróhöpp urðu í umdæminu en í einu þeirra voru slys á fólki. Enginn var tekinn fyrir grun um ölvunarakstur en þrír voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru afskipti höfð af fjórum einstaklingum vegna fíkniefnabrota og voru þau öll minniháttar. Ein líkamsárás var tilkynnt og hafa tveir verið yfirheyrðir vegna hennar. Eitt kynferðisbrot var síðan kært til lögreglu og var einn maður handtekinn í Reykjavík vegna hennar. Var honum sleppt að lokinni yfirheyrslu. Í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra voru 134 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur en sá sem hraðast ók mældist á 166 km/klst. Þá voru fimm ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot og þar á meðal einn fyrir að valda mikilli hættu með glæfralegum framúrakstri. Einn ökumaður var síðan stöðvaður grunaður fyrir akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira